störf þingsins.
Virðulegi forseti. Innrás Pútíns í Úkraínu hefur vakið Íslendinga til lífsins í alþjóðamálum og fyrsta smellufrétt dagsins er ekki lengur veðrið heldur framgangur stríðsins sem nú er háð í Evrópu. Í dag er efsta frétt íslenskra vefmiðla: Rússar hóta að skrúfa fyrir gasið. Skelfileg atburðarás síðustu daga og vikna hefur nefnilega líka opnað augu Íslendinga og Evrópubúa í orkumálum, fyrir því hversu hættulegt það er að Evrópa sé svo háð rússneskri orku. Það er lífsnauðsynlegt að snúa af þeirri braut. Orkumál og öryggismál eru nátengd, tvær hliðar á sama peningnum. Þótt Ísland sé í algerri sérstöðu þegar kemur að orkumálum hlýtur þessi staða að verða okkur hvatning til þess að hraða orkuskiptunum, hvatning til þess að ná því markmiði að verða óháð jarðefnaeldsneyti. Þar eru miklar áskoranir fram undan og kannski ekki síst í viðhorfum ýmissa aðila til þessa stóra verkefnis. Það er því viðeigandi að í dag kom út grænbók hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum. Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir stöðunni varðandi framboð og eftirspurn raforku, gerum okkur grein fyrir stöðunni á flutningskerfinu og það er mikilvægt að við áttum okkur á orkuþörfinni. Þegar við höfum þessi atriði svart á hvítu getum við vonandi loksins hætt að tala bara um orkuskiptin og farið að framkvæma þau.