störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna er tilefni til að fagna árangri í jafnréttismálum og benda á verk sem þarf að vinna. Jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér, það er stöðug vinna að viðhalda árangri og berjast fyrir frekara jafnrétti. Það er fjölbreytt samfélagslegt verkefni á heimsvísu og því miður eru ekki einungis stigin framfaraskref, stundum förum við mörg skref til baka. Stríðið í Úkraínu er slíkt bakslag. Það bitnar á venjulegu fólki og þar með á jafnrétti. Fjölskyldur sundrast, konur og börn verða illa úti. Það er því vel við hæfi að UN Women á Íslandi beini sjónum að stöðu kvenna og stúlkna í Úkraínu í tilefni dagsins. Hjá UN Women er unnið að því alla daga ársins að tryggja réttindi kvenna og stúlkna um allan heim og þrýsta á aðildarríki Sameinuðu þjóðanna að virða sáttmála sem varðar réttindi kvenna og stúlkna. Stríði fylgja auknar líkur á kynbundnu ofbeldi, mansali og almennri neyð. Það eru því miður farnar að berast fréttir af því að líkamar kvenna séu orðnir vettvangur stríðsátaka í Úkraínu eins og alla tíð hefur tíðkast í stríði. Konur neyðast til að flýja heimili sín með ung börn, skilja eftir syni og maka, syni sem þær höfðu vonast eftir að fylgjast með í íþróttum, námi og starfi en ekki í stríðsátökum, maka og bræður sem þær vita ekki hvort þær sjá aftur. Stuðningur miðaður að þörfum kvenna er brýnn, ekki síst til þeirra jaðarsettu. Leggjum okkar á vogarskálarnar til að styðja úkraínskar konur og stuðlum að því að þær fái tækifæri til að vinna að friði, fái að koma að borðinu. Friður er grundvöllur jafnréttis.