störf þingsins.
Herra forseti. Þegar mikilvægar ákvarðanir eru teknar er nauðsynlegt að við borðið sitji bæði karlar og konur og raddir allra heyrist vel. Borðin geta verið margvísleg: ríkisstjórnarborðið, fundarborð sveitarstjórna, borðið þar sem samið er um kaup og kjör og eldhúsborðið þar sem verkum er skipt á fjölskyldumeðlimi. Þetta á líka við um borðið þar sem reynt er að semja um frið á milli stríðandi fylkinga. Á myndum af þeim sem sitja við samningaborðið og reyna að semja um frið í stríði rússneska hersins í Úkraínu sjást engar konur, sem sýnir okkur mjög skýrt að við eigum langt í land að ná jafnvægi í þessum efnum. Og á fleiri sviðum eigum við langt í land. Launamunur hér á landi er enn mikill á milli karla og kvenna sem er mismunun sem fylgir konum ævina út. Lægri laun og hlutastörf gefa lægri lífeyri við starfslok. Það er augljóst mál. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna vil ég að við ræðum um fátækar konur á Íslandi. Á lágmarkslaunum búa þær við mjög kröpp kjör og þær sem þurfa að treysta á greiðslur Tryggingastofnunar eru í enn verri málum. Um 70% lífeyrisþega sem búa við lökustu kjörin eru konur sem voru í hlutastörfum eða heimavinnandi á árum áður. Meðal þeirra sem eru allra verst settar eru konur af erlendum uppruna. Þessi hópur kvenna hefur unnið sér inn lítil eða engin réttindi til greiðslna úr lífeyrissjóðum og þær hafa mjög takmörkuð efni og úrræði til framfærslu. En stjórnvöld virðast ekki hafa frétt af þeirra vanda. Baráttan gegn tekjuójöfnuði og kynjamismunun stendur yfir og Samfylkingin mun ótrauð halda jafnréttisbaráttunni áfram.