störf þingsins.
Virðulegi forseti. Húsaskjól er mannréttindi og íbúðir eru til að búa í, ekki til að braska með. Á síðastliðnu ári hefur íbúðaverð á landinu öllu hækkað um 16,6%. Það gerðist á aðeins tveggja mánaða tímabili að meðalkaupverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um heilar 5 milljónir. Það er ekkert eðlilegt við þetta, þetta er gersamlega sturlaður fasteignamarkaður og ástandið er bein afleiðing af efnahagsstefnu stjórnvalda og þeirri óstjórn sem hefur ríkt í húsnæðismálum á landsvísu um margra ára hríð. Á leigumarkaði hefur kannski ríkt ákveðið svikalogn frá því að heimsfaraldur skall á en nú eru blikur á lofti. Við erum aftur farin að sjá leiguverð hækka hraðar en verðlag og er hætt við því að sú þróun ágerist eftir því sem ferðamönnum fjölgar, íbúðir fara aftur í Airbnb-leigu og hagkerfið tekur við sér. Þetta er auðvitað algerlega fyrirsjáanlegt. Fasteignaverð og leiguverð fylgjast yfirleitt að svona til lengri tíma litið. Þannig er það bara. Einmitt þess vegna er það skammarlegt og ég ætla að leyfa mér að segja algert reginhneyksli að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi enn ekki staðið við loforð sem voru gefin við undirritun lífskjarasamninga 2019 um réttarbætur fyrir leigjendur og endurskoðun húsaleigulaga. Þessi loforð voru svikin á síðasta kjörtímabili. Nú átti frumvarp um þetta að koma inn í þingið í lok janúar. Það kom ekki. Það átti að koma samkvæmt þingmálaskrá en enn bólar ekkert á því. Það er staðreynd að við erum með miklu veikari varnir fyrir leigjendur á Íslandi en í mörgum þeim velferðarríkjum sem við berum okkur saman við. Á hverjum bitnar það? Jú, það bitnar á þeim tekjulægstu, unga fólkinu, innflytjendum, fólkinu sem stendur berskjaldað og varnarlaust frammi fyrir hækkun leiguverðs næstu mánuði og ár.
Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Til langs tíma skiptir mestu að byggja, byggja og byggja (Forseti hringir.) ódýrt leiguhúsnæði á félagslegum forsendum en við þurfum líka að setja afgerandi reglur um leiguþak, leigubremsu (Forseti hringir.) og reisa skorður við hækkun leiguverðs áður en það rýkur enn frekar upp.