152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

störf þingsins.

[14:11]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég vil byrja á að óska öllum konum nær og fjær til hamingju með baráttudag kvenna. Á þessum degi finnst mér vert að staldra við skörun loftslagsbreytinga og kynjajafnréttis. Loftslagsbreytingar eru, eins og við þekkjum, ekki réttlátar. Þótt þurrkar, flóð og aftakaveður hafi áhrif á alla jörðina er staðreyndin sú að fátækustu og jaðarsettustu svæði heims, sem bera í raun minnsta ábyrgð á losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu, verða verst fyrir barðinu á áhrifum loftslagsvárinnar. Konur eru sérstaklega jaðarsettar í þessu samhengi. Rannsóknir hafa sýnt að á heimsvísu eru konur líklegri til að verða fyrir neikvæðum áhrifum vegna loftslagsbreytinga og á sama tíma ná loftslagsaðgerðir oft ekki til þeirra.

Það er orðið deginum ljósara að við getum ekki unnið með loftslagsmál án þess að vinna líka með jafnrétti kynjanna og öfugt, því að þó að konur séu að mörgu leyti fórnarlömb loftslagsbreytinga eru þær líka hluti af lausninni. Rannsóknir sýna að loftslagsaðgerðir á viðkvæmum svæðum styrkjast undir forystu kvenna og eru líklegri til langtímaárangurs. Að sama skapi getur virk þátttaka kvenna verið valdeflandi fyrir þær í samfélaginu og þannig aukið jafnrétti. Skýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, sem kom út í síðustu viku, lagði einmitt mikla áherslu á þátttöku kvenna í loftslagsaðgerðum en hlutverk þeirra sem frumkvöðlar þegar kemur að aðlögun að loftslagsbreytingum á jaðarsettum svæðum mun skipta lykilmáli nú þegar afleiðingar loftslagsvárinnar raungerast í auknum mæli. Þetta er nokkuð sem við hér á Íslandi þurfum að halda á lofti og getum stutt við, t.d. í gegnum þróunaraðstoð. Loftslagsmálin munu setja mark sitt á þróunaraðstoð næstu árin. Það er mikilvægt að vestrænar þjóðir styðji jaðarsettari svæði í aðlögunaraðgerðum og í því samhengi er gríðarlega mikilvægt að við gætum þess að þessar aðgerðir taki mið af jafnrétti.