152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:29]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem hér fer fram. Séreignarstefnan á húsnæðismarkaði er einn af hornsteinum Sjálfstæðisflokksins. Eignamyndun tekjulægri hópa samanstendur af lífeyrisréttindum og verðmæti eigin húsnæðis. Fólk kýs að eiga þak yfir höfuðið og það sækist eftir fjárhagslegu sjálfstæði. Þess vegna höfum við Sjálfstæðismenn lagt áherslu á það að auðvelda fólki fyrstu kaup. Við höfum gert fyrstu kaupendum kleift að nýta séreignarsparnað skattfrjálst til fasteignakaupa og brúuðum bilið fyrir tekju- og eignaminni einstaklinga til fyrstu kaupa með hlutdeildarlánum.

Virðulegur forseti. Að afnema stimpilgjöld af fullu væri gæfuspor fyrir þessa hópa. Við viljum tryggja öllum þak yfir höfuðið með öflugu félagslegu húsnæðiskerfi. Almennu íbúðirnar eru byggðar með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga og við bættum húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna, einstaklinga og ungs fólks. Frá því að lög um almennar íbúðir tóku gildi árið 2016 hafa rúmlega 1.000 íbúðir verið teknar í notkun og tæplega 2.000 íbúðir eru til viðbótar í byggingu. Fjárfesting í þessu nýja húsnæðiskerfi nemur 93 milljörðum kr. Þegar allar íbúðirnar verða komnar í notkun verða um 10.000 Íslendingar í félagslegu húsnæði sem ekki áttu rétt á því áður. Það skiptir máli að húsnæðismarkaðurinn sé í góðu jafnvægi. Tryggja þarf nægt framboð húsnæðis og hraða uppbyggingu til að mæta mikilli þörf og tryggja jafnvægi á markaðinum.

Virðulegi forseti. Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn kom inn í ríkisstjórn árið 2013 hefur stuðningur við fyrstu kaupendur og efnaminni í landinu stóraukist.