152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:30]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hver er staðan? Eða réttara sagt: Hver var staðan? HMS hefur metið það svo að byggja þyrfti 27.000 íbúðir fram til ársins 2030. Þetta hefur hækkað nýlega en þetta var það sem lá fyrir miðað við það sem er verið að gera núna. Það þurfti að byggja 3.500 íbúðir á ári næstu tíu árin eða svo til þess að mæta viðvarandi óuppfylltri íbúðaþörf. Greining Íbúðalánasjóðs sagði áður að þörf væri fyrir að meðaltali 1.830 íbúðir á ári hverju, eins og staðan var þá. Þetta er einmitt staðan sem sveitarfélögin þurfa að miða við í sínum áætlunum. Þetta eru einfaldlega staðreyndir málsins, viðvarandi óuppfyllt íbúðaþörf og byggja þarf 3.500 íbúðir á ári til að vinna hana upp, og meira samkvæmt nýjustu greiningum.

Í Reykjavíkurborg býr um þriðjungur landsmanna, annar þriðjungur annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og svo enn annar þriðjungur utan höfuðborgarsvæðisins. Það mætti því miða við að þriðjungur nýrra íbúða verði byggður í Reykjavík, þriðjungur í nágrenni Reykjavíkur og þriðjungur þar fyrir utan. Enn önnur staðreynd er sú að á síðasta ári voru 48,5% nýrra íbúða byggð í Reykjavík, 54% árið 2020 og 44% árið 2019. Það þýðir einfaldlega fyrir alla þá sem vilja gagnrýna skort á húsnæði og byggja á staðreyndum á sama tíma að Reykjavíkurborg er síðasta sveitarfélagið sem hægt er að gagnrýna í þeim málum hvað varðar íbúðamagn. Enn fremur með tilliti til félagslegs húsnæðis er í áætlunum Reykjavíkurborgar gert ráð fyrir að 25% allra íbúða verði byggð á vegum húsnæðisfélaga sem eru ekki rekin í ágóðaskyni. Það bætist enn við sú staðreynd að 76% af félagslegum leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu eru í eigu eða umsjá Reykjavíkurborgar samkvæmt grein Kjarnans. Ég fer aðeins nánar út í tölfræði félagslegra íbúða í seinni ræðu minni í þessari umræðu en nákvæmt svar um fjölda félagslegra íbúða barst eftir fyrirspurn mína árið 2017. En því miður er ekki komið svar við nýrri fyrirspurn minni um þróun síðan þá.