framtíð félagslegs húsnæðis.
Virðulegi forseti. Hlutverk hins opinbera í húsnæðismálum er að tryggja húsnæðisöryggi allra, stuðla að nægu framboði á húsnæði sem mætir ólíkum þörfum íbúanna, efnum og aðstæðum til og að veita fjárhagslegan stuðning þeim sem þess þurfa. Þetta er í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þar sem húsnæðisöryggi telst til grundvallarmannréttinda. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir yfirferðina á þeim stefnumótandi aðgerðum sem stjórnvöld hafa ráðist í og eru á takteinunum.
Stefna stjórnvalda í húsnæðismálum er skýr; að auka fjárframlög í almenna íbúðakerfið og auka hlut félagslegs húsnæðis og leiguhúsnæðis. Í innleiðingu tillagna átakshóps um húsnæðismál, í samráði við aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélög um endurskoðun ákvæða húsaleigulaga, er markmiðið, með leyfi forseta:
„Að bæta réttarstöðu leigjenda og að tryggja heimildir í skipulagslögum til að gera kröfur um að allt að 25% af byggingarmagni samkvæmt nýju deiliskipulagi skuli vera fyrir almennar íbúðir, félagslegar íbúðir eða aðrar leiguíbúðir, hvort sem eigandi lands er sveitarfélag, ríki eða einkaaðili.“
Þessi stefna nær vel utan um það sem talað var um hér í dag og nær ekki síst utan um þau sem eru hvað jaðarsettust á húsnæðismarkaði, en það eru leigjendur. Tímabundnar aðgerðir opinberra aðila vegna Covid-19 juku eftirspurn eftir húsnæði í ljósi sögulega lágra vaxta í kjölfar vaxtalækkana. Það var aðgerð sem hjálpaði jú mörgum fyrstu kaupendum inn á húsnæðismarkaðinn en það breytir því ekki að hér þarf fleiri íbúðir. Mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýndi að óuppfyllt íbúðaþörf árið 2021 yrði um 4.450 íbúðir, en fólksfjölgun var 31% umfram spár, svo þörfin er líklega um 800 íbúðum meiri. Til þess bæði að halda í við þessa fjölgun íbúa en jafnframt til að draga úr óhóflegum verðhækkunum fasteigna með auknu framboði mun hið opinbera þurfa að halda áfram að byggja upp félagslegt húsnæði, byggja upp almennar íbúðir og leiguíbúðir og mæta þessum aðkallandi þörfum samfélagsins.