152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:35]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Þegar skoðað er hlutfall félagslegs leiguhúsnæðis kemur margt athyglisvert í ljós. Í grein í Kjarnanum, sem birtist 25. nóvember síðastliðinn, kemur í ljós að tæplega 80% félagslegra íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru í Reykjavík. Í Reykjavík eru rúmlega 20 félagslegar íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Í Kópavogi eru þær rúmlega 11, í Hafnarfirði eru þær í kringum tíu, Mosfellsbær skartar sínum fjórum og Seltjarnarnes rekur síðan lestina með þrjár íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Reykjanesbær er með u.þ.b. 230 félagslegar íbúðir á sínum snærum og það gerir þá rúmlega 11 íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Þessar tölur stinga í augun og það er augljóst að sveitarfélögin taka þetta hlutverk sitt, að veita tekjulágu fólki húsaskjól, misalvarlega. Fyrir hverja íbúð sem sveitarfélag setur á markaðinn sem félagslega íbúð minnkar þörfin samsvarandi á almenna markaðnum. Það að Reykjavíkurborg skuli vera með 78% félagslegs húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu, verandi með sirka 55% af heildarfjölda höfuðborgarsvæðisins, sýnir svo ekki verður um villst að önnur sveitarfélög þurfa að gyrða sig í brók og sinna þessum málaflokki af einhverri alvöru.

Mig langar til að velta því upp hér hvort ekki sé kominn tími til að setja einhverjar lágmarkskvaðir á sveitarfélögin svo að þau sinni þessum málaflokki þannig að sómi sé að. Lágtekjufólk fær ekki félagslega íbúð þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði og þarf því að leita eftir úrlausn á hinum almenna leigumarkaði eða þá að leita inn í önnur kerfi sem eru stútfull fyrir. Með því að laga þetta, virðulegur forseti, myndum við bæta stöðuna talsvert á eftirspurnarhliðinni.