framtíð félagslegs húsnæðis.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Auðvitað hefur það ekki farið fram hjá neinum núna um langa hríð ástandið sem er á húsnæðismarkaði hér á landi. Það er ekki bara, því miður, sá hópur sem hér er rætt um og þau félagslegu húsnæðiskerfi sem formuð hafi verið í því samhengi. Við erum í þeirri stöðu að lóðaframboð er allt of lítið. Sumir halda því fram að lóðir eigi að vera hilluvara, aðrir að lóðir eigi að vera sú munaðarvara sem víða er nú um stundir. Það hefur þó verið þannig að ef við horfum t.d. á Bjarg íbúðafélag, þá eru þar 1.300 íbúðir, annaðhvort fullkláraðar, komnar í leigu eða í farvegi. Bríet er með einhver hundruð. Ég er ekki með tölurnar á hreinu en mér sýnist á öllu að þessi félög hafi þrátt fyrir allt haft greiðast aðgengi að úthlutun nýrra lóða frá sveitarfélögum undanfarin ár. Ég er ekki að draga úr þeim vandamálum sem þarna eru til staðar en ég held að við séum að gleyma hópum sem eru sitt hvorum megin við þann hóp sem nýtur þessarar þjónustu. Annars vegar þeir sem fá ekki þessa fyrirgreiðslu, eru skráðir á vanskilaskrá eða hvað það kann að vera, sem þrengir mjög tækifæri til að koma sér inn í hverslags húsnæði og hins vegar er það millitekjuhópurinn sem á sennilega erfiðast um vik þrátt fyrir allt í dag við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Hópurinn sem er að sækja í hinn almenna íbúðamarkað og er ofurseldur því að framboðið er allt of lítið og ástæða þessa litla framboðs er takmarkað lóðaframboð. Það vantar ekki fyrirgreiðslu hvað fjármögnun varðar. Það vantar ekki vinnufúsar hendur að byggja upp. Það vantar lóðir. Á meðan við tölum ekki um kjarnaatriðið, kjarnavandamálið (Forseti hringir.) er hætt við að við komumst ekki mikið áfram.