152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:39]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Jafnaðarmenn hér á landi hafa barist fyrir félagslegu húsnæðiskerfi við hlið verkalýðshreyfingarinnar. Hinum norrænu ríkjunum hefur tekist betur upp í þeim efnum en okkur þar sem félagslegt húsnæðiskerfi hefur staðið sterkt í meira en 100 ár. Við erum nú í þeirri stöðu árið 2022 að þurfa að byggja upp félagslegt íbúðakerfi eftir að það var lagt niður á sínum tíma. Því mótmæltu jafnaðarmenn harðlega og skemmst er að minnast lengstu ræðu sem haldin hefur verið úr þessum ræðustól sem fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti vorið 1998 til að mótmæla eyðileggingu Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins á félagslega húsnæðiskerfinu.

Húsnæðisöryggi er ein af undirstöðum velferðar. Velferð barna á ótryggum leigumarkaði er undir þegar fjölskyldur í húsnæðisvanda þurfi að flytja oft á milli skólahverfa. Samfylkingin – Jafnaðarmannaflokkur Íslands leggur áherslu á að stjórnvöld setji fram tölusett og fjármögnuð langtímamarkmið í uppbyggingu félagslegs húsnæðiskerfis og markmiðin verði sett í samráði við sveitarfélög, stéttarfélög og húsnæðisfélög sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Mikill skortur er á félagslegu húsnæði um land allt. Áætlanir ríkisins og sveitarfélaga verða að vinna saman. Stjórnvöld verða að sammælast um að stórauka framboð á húsnæði fyrir tekju- og efnalitlar fjölskyldur. Lágtekjufólk hefur ekki efni á að kaupa húsnæði og leiga á almennum markaði er mjög há, t.d. sýna leigukannanir að 70% öryrkja greiða yfir 30% ráðstöfunartekna sinna í leigu. Af þeim hópi greiðir um þriðjungur meira en helming ráðstöfunartekna sinna í leigu. Reykjavíkurborg stendur sig áberandi best í uppbyggingu félagslegra íbúða eins og fram hefur komið fyrr í þessari umræðu.