framtíð félagslegs húsnæðis.
Virðulegur forseti. Við ræðum framtíð félagslegs húsnæðis á Íslandi. Við horfum upp á það viðvarandi vandamál að framboð húsnæðis er af skornum skammti hér á landi. Þetta hefur vissulega áhrif á framtíð félagslegs húsnæðis sem og eigið húsnæði. Eftirspurnin vex ár hvert en framboðið mætir henni ekki. Þessi vandi skrifast á hina ýmsu fasa stjórnsýslunnar en við verðum að horfa til þeirra sem úthluta lóðunum og skipuleggja byggð. Nauðsynlegt er að skilgreina ábyrgð sveitarfélaganna þegar kemur að því að tryggja framboð félagslegs húsnæðis sem og annars húsnæðis. Það liggur fyrir að sveitarfélögin þurfa að tryggja að byggt verði nóg þannig að framboð á húsnæði, og þá líka félagslegu húsnæði, verði nægjanlegt. Sveitarfélögin mega ekki vera dragbítur í baráttunni við húsnæðisvandann. Í þessu samhengi má taka Reykjavíkurborg sem dæmi. Meiri hluti borgarstjórnar hefur lýst því yfir að 1.000 íbúðum verði úthlutað í ár þegar þörfin er rúmlega 4.000. Það er ekki erfitt að sjá að þarna þarf að spýta í lófana ef stefnan er að bæta húsnæðismarkaðinn og stuðla að betri framtíð hans í heild. Mikilvægt er að sporna við mögulegri pattstöðu og við þurfum að tryggja framboðið og dreifa því þvert yfir landið en einnig gætum við horft til frekari útvíkkunar á hlutdeildarlánunum sem komið var á fót fyrir tilstilli Framsóknar og á okkar vakt á síðasta kjörtímabili. Það er greinilegt að mörg verkefni eru á höndum stjórnvalda í þessum efnum. Þessi verkefni eru aðkallandi. Við þurfum öll að leggja hönd á plóg til að tryggja framtíð félagslegs húsnæðis á Íslandi og fyrsta skrefið er að tryggja nægjanlegt framboð.