152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég endaði fyrri ræðu mína á að segja að varlega áætlað vantaði um 15.000 íbúðir og það gefur augaleið að stærstur hluti þeirra er á höfuðborgarsvæðinu. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar stendur, með leyfi forseta:

„Mesta uppbyggingarskeið borgarinnar heldur áfram en á síðasta ári voru samþykkt byggingaráform fyrir 1.285 nýjar íbúðir í Reykjavík […] Á árinu 2021 hófst bygging á 1.065 nýjum íbúðum sem skiptast þannig að 993 voru í fjölbýli, 40 í raðhúsum, 12 í tvíbýli og 20 í einbýli. Tölurnar eru byggðar á útgefnum byggingarleyfum.“

1.285 íbúðir eru um 8% af þörfinni þannig að betur má ef duga skal. Þörfin er mun meiri en þetta. Samkvæmt skýrslu Íbúðalánasjóðs frá 2019 kemur fram að þörfin á nýjum íbúðum séu um 1.800 á ári. Af hverju hefur uppbyggingin ekki verið meiri í fleiri ár og af hverju, eftir 20% aukningu, er hún samt ekki nema 70% af því sem hún hefði þurft að vera á hverju ári mörg undanfarin ár? Það hefði verið hægt að komast hjá þessum vanda ef öðruvísi hefði verið haldið á málum, ekki hvað síst hjá stærsta sveitarfélagi landsins.

Hvað varðar uppbyggingu félagslegs húsnæðis þá gildir það sama á því sviði. Þar er skortur. Það þarf klárlega að byggja félagslegar íbúðir til að svara þörfum þeirra sem þurfa félagsleg úrræði en félagslegt húsnæði er ekki lausn á þeim framboðsskorti sem þegar er staðreynd og mun vera viðvarandi til næstu ára komi ekki til stórtækra framkvæmda strax á þessu vori. Við verðum að varast þá hugsun að félagslegt húsnæði sé lausn á framboðsvandanum af því að ekki séu til nægar eignir á markaði til þess að anna eftirspurn. Það þarf að stórefla uppbyggingu félagslegra íbúða en einnig og ekki síður þarf að auka framboð eigna á viðráðanlegu verði sem ekki eru í dýrum turnblokkum í 101. Öðruvísi lagast þetta ástand ekki í fyrirsjáanlegri framtíð. Staðan á húsnæðismarkaði hefur sjaldan verið verri en nú og þessi uppbygging þarf að hefjast strax í vor. Við (Forseti hringir.) verðum að byggja nýtt Breiðholt og ríkið verður að koma að þessari vinnu í samvinnu við sveitarfélögin.