152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð félagslegs húsnæðis.

[14:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni þá er þriðjungur af landsmönnum í Reykjavík en þrátt fyrir það voru 48% nýrra íbúða byggð í Reykjavík á síðasta ári, 54% árið þar áður og 44% árið 2019. Það þýðir einfaldlega að ef afgangurinn af höfuðborgarsvæðinu og landinu hefði verið að byggja sitt hlutfall af íbúðum hefðum við náð að uppfylla þá íbúðaþörf sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sagði að þyrfti, þ.e. 3.500 íbúðir.

Í lok síðasta árs komu hins vegar fram nýjar tölur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að þörfin væri enn meiri. Sveitarfélög munu þurfa að uppfæra tölur um hversu margar íbúðir þarf að byggja á næstu árum. Nauðsynlega, það lá í loftinu. Hér hefur verið talað um að stefna Reykjavíkur sé einmitt að byggja 1.000 íbúðir, þ.e. að lágmarki 1.000, og samkvæmt gömlu áætlununum var það nóg til að uppfylla þá íbúðaþörf sem var til staðar samkvæmt áætlunum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Það var einfaldlega samkvæmt forskrift stjórnvalda, ríkisins, um það hver íbúðaþörfin væri, hvernig húsnæðisáætlun var gerð. Þegar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er búin að uppfæra þá áætlun þurfa sveitarfélögin tvímælalaust að taka við. Það kostar líka að byggja of mikið. Það er líka erfitt, það veldur verðhjöðnun. Það er rosalega erfitt fyrir fólk sem hefur skuldsett sig upp í rjáfur á undanförnum árum. Ef íbúðaverð fellur lendum við í sama ástandi og var hér eftir hrun, þ.e. að skuldir verða miklu hærri en andvirði íbúða. Það er líka vandamál.

Það er erfitt að ná jafnvægi í þessu og staðan er þannig núna að Reykjavík hefur sinnt sínu hlutverki og rúmlega það og er líka með rúmlega 48% af öllu félagslegu húsnæði á landinu.