aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er mælt fyrir um gerð aðgerðaáætlunar í málaflokknum og er þetta sú fyrsta sem eingöngu snýr að málefnum hinsegin fólks. Á undanförnum árum, frú forseti, hefur ýmislegt verið gert til að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks og í sögulegu samhengi getum við rifjað upp ýmsa áfanga í þeim efnum, til að mynda hjúskaparlög fyrir öll óháð kynhneigð sem tóku gildi fyrir tólf árum, lög um réttarstöðu trans fólks, sem voru samþykkt tveimur árum síðar, en þar var stigið skref í þá átt að tryggja mikilvæg mannréttindi trans fólks. Ég get rifjað upp lög um kynrænt sjálfræði sem voru samþykkt 2019 og í lok árs 2020 voru samþykkt þrjú lagafrumvörp sem tengjast þeim lögum þar sem aldursviðmið þeirra sem breytt geta kynskráningu í samræmi við kynvitund lækkaði úr 18 árum í 15, réttur barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni til líkamlegrar friðhelgi var tryggður og einnig voru samþykkt lög um breytingar á ýmsum lögum til að tryggja að lagaleg réttindi fólks með kynhlutlausa skráningu og annars trans fólks.
Þessi þingsályktunartillaga er byggð upp af 19 af verkefnum sem er ætlað að skilgreina stefnu stjórnvalda og lýsa tilteknum brýnum verkefnum sem miða að því að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks í samfélaginu. Ábyrgð á þeim er á hendi tíu ráðuneyta. Öll þessi verkefni eru tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á sama hátt og aðgerðir í framkvæmdaáætlun um jafnréttismál. Skrifstofa jafnréttismála í forsætisráðuneytinu hafði yfirumsjón með gerð þessarar áætlunar og kallað var eftir hugmyndum og athugasemdum við áætlunina á vinnslustigi, það var haft samráð við jafnréttisfulltrúa allra ráðuneyta og leitað eftir athugasemdum hjá sérfræðingum. Einnig var haft samráð við hagsmunasamtök hinsegin fólks sem skipuðu vinnuhóp sem fundaði með sérfræðingum ráðuneytisins við gerð aðgerðaáætlunarinnar. Þingsályktunartillagan var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 8. janúar til 8. febrúar síðastliðinn. Það bárust 17 umsagnir og farið var yfir þær og tekið tillit til sumra þeirra, m.a. var eftir það samráð bætt inn aðgerð sem varðar setningu reglugerðar um heilbrigðisþjónustu fyrir trans börn og ungmenni og þannig verður hlutverk teymis barna- og unglingageðdeildar um kynvitund skýrt betur með því að skilgreina þá þjónustu sem teyminu ber að veita þeim sem til þess leita. Þá var líka bætt inn aðgerð um breytingar á reglugerð um blóðgjafir þar sem markmiðið er að afnema mismunun blóðgjafa á grundvelli kynhneigðar. Til að tryggja eftirfylgni aðgerðanna verður sett upp mælaborð líkt og gert hefur verið um verkefni í framkvæmdaáætlun um jafnréttismál og áætlun um forvarnir meðal barna gegn kynferðislegu kynbundnu ofbeldi og áreitni en slíkt mælaborð auðveldar eftirfylgni og gerir stöðu aðgerða aðgengilega og skýra.
Áratugalöng réttindabarátta hinsegin fólks á Íslandi hefur skilað okkur fram á veg og hér á landi hafa margvíslegar réttarbætur litið dagsins ljós á undanförnum misserum og árum. Ég nefndi áðan löggjöfina um kynrænt sjálfræði sem styrkir ákvörðunarrétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt í samræmi við eigin upplifun og réttarvernd barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. En ég hlýt líka að nefna þá breytingu sem varð að lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, en hétu áður jöfn staða og jafn réttur karla og kvenna, þar sem ekki er eingöngu tekið til karla og kvenna heldur einnig þeirra sem hafa hlutlausa kynskráningu. En þó að við höfum náð ýmsum áfangasigrum, eins og þeim sem ég hef rakið hér að framan, er mikilvægt að slaka ekki á heldur halda áfram og gera betur. Barátta hinsegin fólks eins og önnur jafnréttis- og mannréttindabarátta er í stöðugri mótun og henni lýkur ekki þó að við náum ákveðnum markmiðum.
Málaflokkur hinsegin málefna er tiltölulega nýr innan stjórnkerfisins en hefur nú fengið sitt varnarþing hjá skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu og þar er til staðar þekking og sérfræðingar vinna að margvíslegum skaðabótum í málaflokknum. Töluverð sérfræðiþekking byggðist upp í tengslum við löggjöfina um kynrænt sjálfræði og þá vil ég sérstaklega nefna skýrslu starfshóps um kynrænt sjálfræði og tillögur starfshóps um málefni barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, sem lögðu í raun og veru þann mikilvæga grunn sem á eftir kom.
Frú forseti. Það liggur fyrir að þrátt fyrir breytingar á löggjöf en ekki síður breytingar á viðhorfum fólks í samfélaginu, breytingar á menningu, þá sætir hinsegin fólk enn þá mismunun sem er nauðsynlegt að ræða og leitast við að útrýma. Til að stuðla að málefnalegri umræðu um stöðu hinsegin fólks er fræðsla mikilvæg á öllum stigum og til að koma til móts við þetta lúta mörg verkefnanna í aðgerðaáætluninni að fræðslu og vitundarvakningu um málefni hinsegin fólks. Fjórar aðgerðir snúa beint að fræðslutengdum verkefnum, fræðslu til lögreglu, fræðslu til kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélaga, fræðslu fyrir stjórnendur ríkisins og fræðslu um hinsegin börn í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Það er áhugavert að nefna að það var sérstaklega spurt um nauðsyn á fræðslu fyrir þau sem eru að vinna með börnum, bæði í skólum og tómstundastarfi, á barnaþingi sem haldið var hér fyrir helgi þannig að þetta var ofarlega í hugum þeirra barna sem þar sátu og ræddu mannréttindamál sérstaklega. Enn fremur er lögð áhersla á rannsóknir, kortlagningu og viðhorfskannanir sem tengjast stöðu hinsegin hópa í samfélaginu og þannig snúa alls sex aðgerðir að kortlagningu, úttektum og viðhorfskönnunum sem tengjast hinsegin fólki, stöðu þeirra og réttindum. Þar er um að ræða úttekt á aðgengismálum trans fólks í opinberum rýmum og á vinnustöðum, kannanir á viðhorfum og stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, sem eru tvær aðgerðir, rannsókn á heimilisofbeldi í hinsegin fjölskyldum með sérstakri áherslu á stöðu hinsegin barna og ungmenna í fjölskyldum og úttekt á líðan hinsegin barna í skólakerfinu en það er margt sem bendir til að þeim hópi hafi ekki verið gefið nægilegt rými í þeim reglubundnum könnunum sem eru framkvæmdar á líðan barna og ungmenna í skólum. Síðast en ekki síst er lagt til að ráðist verði í heildarúttekt og kortlagningu á stöðu og réttindum hinsegin fólks á Íslandi.
Setning reglugerða og verklagsreglna ásamt breytingum á lögum og reglugerðum eru viðfangsefni í fimm aðgerðum. Þar er ég að vitna til reglugerðar um heilbrigðisþjónustu, reglugerðarbreytingar tengdar aðgengi trans fólks að opinberum rýmum, breytingu á reglugerð um blóðgjafir. Ein aðgerð mælir fyrir um setningu verklagsreglna teymis Landspítala um kynvitund og breytingar á kyneinkennum og enn fremur er mælt fyrir um breytingar á almennum hegningarlögum sem taki til hatursorðræðu og hatursglæpa. Þetta er mjög mikilvægt mál sem hefur verið rætt á Alþingi. Það er líka ljóst að það er mikil umræða um nákvæmlega þetta mál í hinsegin samfélaginu og full ástæða til að grípa til aðgerða þess vegna, bæði hvað varðar breytingar á löggjöf en ekki síður að vekja umræðu og standa fyrir fræðslu því að þetta virðist vera vandamál sem er vaxandi eftir því sem dæma má af hinni opinberu umræðu.
Á alþjóðavettvangi er í aðgerðaáætluninni lögð áhersla á að Ísland standi hér eftir sem hingað til vörð um réttindi hinsegin fólks hvarvetna og leggi áherslu á málaflokkinn í sinni utanríkisstefnu og ég vil nefna það sérstaklega, eins og getið er um í greinargerð, að eitt af þeim málum sem lögð var áhersla á þegar Ísland tók sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna var staða hinsegin fólks.
Með þessari aðgerðaáætlun, frú forseti, er stigið stórt skref til að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks. Hún er liður í því að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks. Það er mikilvægt að við setjum mannréttindi í forgrunn alls þess sem við gerum og þar þurfum við að horfa til stöðu ólíkra hópa því að það að bæta stöðu hinsegin fólks mun ekki eingöngu skipta máli fyrir þann hóp heldur mun það gera samfélagið allt betra.
Það er ekki gert ráð fyrir að þessi tillaga hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs en verkefni áætlunarinnar teljast rúmast innan fjárheimilda jafnréttisliða þannig að að sjálfsögðu mun verður kostnaður af einhverjum þessara verkefna en hann ætti að rúmast innan þeirra fjárheimilda sem eru fyrir hendi nú.
Frú forseti. Ég ætla ekki að lesa frekar upp úr þessari áætlun. Ég vil bara segja að það skiptir máli að við áttum okkur á því að þessari baráttu, eins og ég sagði hérna áðan, lýkur aldrei. Þessi áætlun er ekki tæmandi svar við öllu því sem við þurfum að gera betur í þessum málaflokki en hins vegar er það mín einlæga sannfæring að hún geti orðið til þess að bæta verulega stöðu hinsegin fólks á Íslandi.
Ég legg til að þegar þessari umræðu verður lokið hér á eftir verði tillögunni vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.