aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir kynninguna á þessari þingsályktunartillögu sem ber þess ögn merki að hafa verið unnin í miklum flýti, en það kann þó að vera misskilningur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í það að um er að ræða aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks og maður sér þarna leynast inn á milli atriði sem þegar er búið að samþykkja hér á þinginu og líka atriði sem ráðherra hefur beinlínis lýst yfir að vera búin að taka ákvörðun um að afgreiða. Vil ég þar t.d. nefna breytingar á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs, sem er 18. töluliður í þingsályktunartillögunni. Fyrir kosningar fór þáverandi heilbrigðisráðherra mikinn í fjölmiðlum og tilkynnti að hún væri búin að taka ákvörðun um að breyta reglugerð þannig að hinsegin fólk gæti gefið blóð. Því var fagnað um borg og bæ en svo virðist sem hún hafi ekki framkvæmt þá reglugerðarbreytingu sem henni var þó í lófa lagið að framkvæma eins og hún tjáði. Ég vil spyrja aðeins út í þetta, hvers vegna þetta er allt í einu komið inn í þessa aðgerðaáætlun.
Ég vil líka spyrja út í lið er varðar heilbrigðisþjónustu, tölulið 17, sem snýr að því að skýra betur hlutverk teymis barna- og unglingageðdeildar Landspítala um kynvitund þegar kemur að þjónustu við einstaklinga sem falla undir lögin og hvaða sérfræðiþjónustu sé nauðsynleg að tryggja þeim sem leita eftir þjónustu teymisins. Nú er það svo, frú forseti, að það hafa verið ofboðslegir biðlistar eftir því að komast í trans teymið á Landspítala og ég velti fyrir mér hvort við eigum endilega að vera að eyða mikilli orku í að fara í einhvers konar rannsókn á þessu, hvort við eigum ekki frekar að einbeita okkur að því að stytta biðlista til að koma í veg fyrir óafturkræft tjón á börnum.