152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hvað varðar síðara atriðið sem hv. þingmaður nefnir þá er það mat þeirra sem þekkja best til þessarar löggjafar að það sé mjög brýnt að skýra stöðu barna yngri en 16 ára þar sem óskir koma fram um óafturkræfar breytingar á grundvelli undanþáguákvæðisins í 11. gr. laganna og enn fremur að það þurfi að skilgreina betur ráðgjöf um varðveislu kynfruma og frjósemisaðgerðir. Ég get bara tekið undir það með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að taka á þeirri bið sem er eftir þessari þjónustu og þessari aðgerð er ekki ætlaði að gera lítið úr því mikilvæga verkefni. Þar held ég að við hv. þingmaður séum algjörlega sammála. En hvað þetta varðar þá eru þetta ábendingar sem hafa komið fram eftir að lögin eru sett, að það skipti máli að skerpt verði á þessum tilteknu þáttum.

Hvað varðar reglugerðina sem hv. þingmaður spyr hér eftir, um blóðgjöf, þá liggur það fyrir að reglugerðinni hefur ekki verið breytt. Boðaðar breytingar voru settar í samráðsgátt. Við það mál bárust töluverðar athugasemdir. Það hefur verið spurt eftir þessum breytingum og það er ástæðan fyrir því að hér er áréttaður vilji núverandi heilbrigðisráðherra til að ljúka þeim breytingum, en það hefur tekið sinn tíma að ljúka samráðsferlinu. Það er ástæðan fyrir því að þessi aðgerð er sérstök aðgerð hér, það er til að árétta þá ætlan hæstv. heilbrigðisráðherra að ljúka þeirri breytingu.