aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir andsvarið. Í þessa aðgerðaáætlun hefur ríkisstjórnin ákveðið að ráðstafa 45 milljónum á fjórum árum. 40 milljónir eiga að fara í framkvæmdasjóð þar sem hægt er að sækja um, 10 milljónum á ári verður úthlutað í sérstök verkefni fyrir hinsegin fólk og 5 milljónir verða settar í kortlagningu á stöðu og réttindum hinsegin fólks á Íslandi. Telur forsætisráðherra þetta vera nóg? Telur forsætisráðherra rétt að setja öll þau verkefni sem þarna eru í hendur alls kyns aðila að fjárfesta í og útfæra án þess að því fylgi nokkurt fjármagn? Og telur forsætisráðherra ekki nauðsynlegt að farið verði í róttækari aðgerðir þegar kemur að hinsegin börnum í skólakerfinu? Það er búið að rannsaka líðan hinsegin barna í skólakerfinu og (Forseti hringir.) líðan þeirra er slæm en nú þarf aðgerðir en ekki frekari rannsóknir.