aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Það liggur fyrir að ekki er verið að tína til einstaka kostnaðarliði í þessari áætlun. Það liggur að sjálfsögðu fyrir að það að taka þátt í rannsóknum og annað slíkt kostar fjármuni sem eru kannski ekki verulegir, eins og hv. þingmaður þekkir, en gert er ráð fyrir að rúmist innan fjárheimilda ráðuneyta sem vinna samkvæmt rammafjárlögum. Þarna er því í raun verið að leggja til ákveðna forgangsröðun. Ég er ekki að segja að þetta séu háar fjárhæðir, ég er ekki að segja það. Ég er bara að benda á að gert er ráð fyrir því að fræðsla til að mynda, sem öll þessi verkefni eru, er ekki ókeypis en við gerum ráð fyrir að ráðuneytin tryggi þann kostnað af sínum fjárheimildum.
Hvað varðar líðan hinsegin barna og ungmenna þá er það rétt að Samtökin '78 hafa tekið þátt í alþjóðlegri könnun fyrir hönd Íslands þar sem þetta kemur fram, að hinsegin nemendum á aldrinum 13–18 ára líði verr en öðrum ungmennum í grunn- og framhaldsskólum. Það sem liggur fyrir og er áhugi á að gera, held ég, hjá hinsegin samfélaginu er að þær kannanir sem við erum að gera reglulega hér á landi innan skólanna taki betur til þessa hóps barna og ungmenna. Ég held að það geti ekki nokkur maður andmælt því að það skiptir miklu máli til þess að við getum tekist á við að bæta þá líðan, til þess að við getum tekist á við það að hinsegin fræðsla nýtist sem best og að kynfræðsla nýtist ekki síður hinsegin börnum og ungmennum en öðrum. Það liggur fyrir að talin er þörf á því að rýna betur í þessar rannsóknir og að við rannsökum með reglubundnum hætti þennan hóp sérstaklega þegar við erum að rannsaka líðan barna og ungmenna almennt í skólum. Ég held að full ástæða sé til þess að breyta því verklagi og breyta því til frambúðar því að hér er ekki verið að tala um einhverja einskiptisaðgerð heldur að við getum fylgst náið með þessu í framtíðinni. Ég held að það skipti verulegu máli.