aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Virðulegi forseti. Ég hélt kannski, í ljósi þess að hæstv. forsætisráðherra eftirlætur Sjálfstæðisflokknum ríkisfjármálin og Framsóknarflokknum flest þau málefni er varða velferðarkerfið, að nú þegar forsætisráðherra leggur sjálf fram þingmál sem lýtur að mannréttindum og jafnréttismálum sem heyra undir hennar eigin málefnasvið þá fengjum við loksins að sjá afgerandi og vel útfærða aðgerðaáætlun til að bæta réttarstöðu hinsegin fólks á kjörtímabilinu og verja hagsmuni þess á öllum stigum stjórnsýslunnar og á öllum sviðum samfélagsins. En, nei, við sitjum hér uppi með alveg ofboðslega rýrt plagg sem væri kannski réttast að forsætisráðherra tæki aftur inn í ráðuneyti sitt og ynni betur í samráði við samtök hinsegin fólks. Svo væri hægt að fá það hér inn í þingið til dýpri umfjöllunar og samþykkis.
Víkjum þá að efnisatriðunum. Samtökin '78 hafa á undanförnum árum kallað eftir aðgerðum í þágu hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem er gríðarlega jaðarsettur hópur. Nú má vel vera að það sé stefna hæstv. dómsmálaráðherra að þjarma að hælisleitendum og skerða réttindi þeirra. Það má vel vera. En hvernig í ósköpunum dettur hæstv. forsætisráðherra í hug að leggja hérna fram heila aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks þar sem ekki er orði minnst á þennan hóp?