aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Virðulegi forseti. Það er kannski til marks um algjört áhugaleysi eða bara einbeitta stefnu hæstv. ríkisstjórnar gagnvart fólki á flótta að hér vék hæstv. forsætisráðherra ekki einu orði að þeim hópi sem fyrirspurn mín fjallaði um. Ég er auðvitað ekki sá eini sem er furðu lostinn yfir því að ekki sé minnst á þennan hóp í þessu plaggi, Samtökin '78, sem hæstv. forsætisráðherra segir að haft hafi verið mikið samráð við við gerð þessarar áætlunar, benda líka á þetta. Reykjavíkurborg bendir á þetta og fleiri eru furðu lostin yfir þessu. Eins vantar náttúrlega alla umfjöllun og meðvitund í þessa aðgerðaáætlun um það sem er kallað „intersectionality“, samtvinnun til að sporna gegn margþættri mismunun, hvort sem horft er til hælisleitenda eða fatlaðs fólks. Það er ofboðslega gamaldags nálgun í þessari aðgerðaáætlun. (Forseti hringir.) Þetta eru 40 milljónir á fjórum árum. Það væri gaman að heyra hvort það endurspegli mikilvægi málefna hinsegin fólks í ríkisstjórninni, (Forseti hringir.) 40–45 milljónir á fjórum árum, 11 milljónir á ári.