152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég minni á, af því að hv. þingmaður ræðir hér um fjölþætta mismunun, að það er ekki langt síðan við breyttum jafnréttislögunum að mínu frumkvæði hér á Alþingi þar sem inn voru tekin ákvæði um fjölþætta mismunun. Nú hefur til að mynda kærunefnd jafnréttismála fellt sinn fyrsta úrskurð sem byggir á þeim nýju lagaákvæðum. Það kann vel að vera að hv. þingmaður haldi að ekki sé fjallað um þetta í löggjöfinni en það er gert (Gripið fram í.) og það er vegna þess frumvarps sem ég lagði hér fram og aðgerðaáætlunin byggir að sjálfsögðu á gildandi löggjöf. Það var rætt um fólk á flótta í aðdraganda þessarar vinnu og þar var töluvert rætt um 37. gr. útlendingalaga þar sem sérstaklega er tekið fyrir að hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd falli undir þá grein þar sem sérstaklega er fjallað um viðkvæma hópa. Ég vil vitna til þess en hef kannski ekki tíma til þess þar sem klukkan er farin að blikka á mig en um þetta var fjallað í aðdraganda og niðurstaðan var að þetta var ekki inni. (Forseti hringir.) En ég ítreka það að ég hef átt óskaplega góð samskipti við Samtökin '78 og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér hvernig fjárveitingar til þeirra hafa þróast í minni forsætisráðherratíð. (Forseti hringir.) Ég hugsa að það komi honum ánægjulega á óvart. (JPJ: … fólk á flótta.)

(Forseti (DME): Ég bið hv. þingmann að nota ræðupúltið til þess að koma skoðunum sínum á framfæri.)