aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég get a.m.k. algerlega lofað honum því að ég mun fylgja þessu máli eftir í nefnd. Ég get auðvitað ekki svarað fyrir vinnu síðustu nefndar fyrir ári og hvernig þau komust að sinni niðurstöðu. En ég segi það bara að ég mun fylgja þessu eftir í nefndinni og þetta er góð ábending. Sjálf hef ég reynslu af því að þurfa að kaupa egg af minni eiginkonu. Ég hef þurft að mæta á skrifstofu til að stimpla og skrifa undir það að ég eigi mín eigin börn, þannig að vissulega þarf að skoða þetta og fylgja því eftir og ég þakka ábendinguna.