aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Takk fyrir góð viðbrögð. Það er, eins og hv. þingmaður fór yfir, svo fáránleg staða að ákveðin tegund af foreldrum sé þannig gagnvart kerfinu að það þurfi eitthvert sérferli til að fá þá stöðu viðurkennda. Ég vil trúa því að við getum sett lög og reglur án þess endilega að tilheyra hópnum sem við erum að setja reglurnar um. Við eigum að geta samsamað okkur þeim sem við erum að véla um hér í þingsal en svo, án þess að ég ætli að gera þáverandi allsherjar- og menntamálanefnd upp illan vilja eða eitthvað svoleiðis, held ég að þetta sé skýrt dæmi um að þarna vantaði fólk bara aðeins að setja upp hluttekningargleraugun og átta sig á því hvað þetta væri fáránleg staða. Mögulega var pínulítið flókið að ná utan um þetta í lagabókstafnum. Mögulega var þetta of mikið vesen til að fólk sem samsamaði sig ekki vandanum sem verið var að leysa sæi ástæðu til að leggja vinnuna á sig. En ég er ánægður með þau viðbrögð sem ég fékk hér og treysti hv. þingmanni til góðra verka í því.