152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[15:43]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Þetta eru ákaflega falleg og góð samskipti sem ég og hv. þingmaður eigum hér og ég held að það hafi ekki verið nein sérstök spurning í síðara andsvari hans. En ég bara legg á það áherslu, sem ég sagði í ræðu minni, að bæði er það þannig að við munum ekki ná utan um hvert einasta smáatriði í einu vettvangi og eins munu koma upp nýjar aðstæður með nýjum áskorunum. Við þurfum því alltaf að vera að endurskoða stöðuna. Það er víða í hinu opinbera kerfi, í heilbrigðiskerfinu — þú ert að skrá barn í leikskóla, þar stendur móðir og faðir í öllum umsóknum þó að mæðurnar séu tvær eða feðurnir tveir. Það er ýmislegt sem þarf að laga. Það tekur tíma, það þarf vilja, það þarf þrýsting. En ég ítreka bara það sem ég sagði að með vélarafli samstöðunnar ganga þessar breytingar hraðar.