aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Við ræðum aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks. Mig langar aðeins að segja frá því að það var haldið landsþing hinsegin fólks um nýliðna helgi. Það var fjölbreytt dagskrá fyrir börn og unglinga, fyrir fullorðna og aldraða, fyrir fólk sem vildi fræðast og fólk sem vildi skemmta sér og það var enginn hörgull á fólki úr öllum þessum flokkum. Síðan lauk þessu landsþingi með vel sóttum aðalfundi á sunnudaginn. Mér fannst mjög gott að geta glaðst saman í góðra vina hópi, í hópi jafningja, örugg í góðu og frjálslyndu samfélagi og í samfélagi þar sem réttindi hinsegin fólks eru löggjafanum hugleikin vegna þess að þau eru það. Þau eru það hér á landi og það hefur Alþingi sýnt síðustu árin svo ekki verður um villst. Það verður aldrei nógsamlega áréttað hversu mikilvægt það er að við séum alltaf með á nótunum og á varðbergi fyrir því að hér geti allt hrunið á svipstundu, líf okkar, öryggi og heimsmynd. Við vitum líka heimsmynd hverra er fyrst slegin út af borðinu. Við erum með ný skelfileg dæmi um það og þess mikilvægara er að löggjafinn tryggi þessi réttindi hinsegin fólks á þann veg sem best er hægt, það er a.m.k. einhver vörn í því.
Hæstv. forsætisráðherra leggur hér fram tillögu til þingsályktunar um þessa fyrstu aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum hinsegin fólks og því ber að fagna og ég fagna því, ég fagna því verulega. Ég heyri það á ræðum þeirra sem hér hafa verið fluttar að hv. þingmönnum, kollegum mínum, þykir að það mætti ganga lengra og ég get verið sammála því. Ég er sammála því að það hefði mátt stíga fastar niður og e.t.v. vera með skýrara aðgerðaplan af því að þegar ég les í gegnum þetta þá sé ég svo oft að það er árétting um að skoða eitthvað frekar og kanna jafnvel eitthvað sem er fyrirliggjandi. Áherslan mætti kannski að einhverju leyti vera meira á það að leita til þeirra sem aðgerðaáætlunin á raunverulega að ná til, hvort sem það eru þeir sem tilheyra hópi hinsegin fólks eða þeir sem fræðslan eða hvatning til breytinga á að ná til. Þetta er svolítið, ég ætla að leyfa mér að sletta, frú forseti, bjúrókratískt, það er ákveðið skrifræði í þessu, en kannski verða svona plögg að vera það og kannski er þetta bara einhver hattur yfir aðgerðaáætlun sem við sjáum fyrr en síðar.
Mig langar til að drepa á nokkur atriði sem ég vann upp úr umsögnum sem hafa svo sem verið nefndar hérna. Þær eru frá Samtökunum '78‘, þeim góðu samtökunum, Trans Íslandi, frá Reykjavíkurborg og sérfræðingum á sviði hinsegin málefna. Rauði þráðurinn er svolítið sá að þótt hér sé um að ræða verulega jákvætt skref á góðri vegferð okkar þá hafi verið lítið gert með ábendingar sem fóru í samráðsgáttina, ábendingar þeirra sem best þekkja til. Við erum, eins og ég sagði, samkvæmt þessari aðgerðaáætlun svolítið enn þá að skoða og safna gögnum og rannsaka frekar en að grípa til aðgerða í ljósi þeirra upplýsinga og þekkingar sem við raunverulega höfum.
Það er búið að tala hér um fjármagnið. Alltaf þarf meiri pening og ég ætla ekki að eyða meira púðri í það. Það hefur komið fram og ég get alveg tekið undir það. Síðan er það staða Íslands á regnbogakortinu. — Frú forseti. Eru bara 10 mínútur í ræðu? Ég er algerlega slegin út af laginu en ég læt mig hafa það. Það eru sem sagt nokkur svið sem ríkið snertir ekki á í þessari áætlun til að komast áfram samkvæmt regnbogakortinu. Mig langar til að nefna stöðu hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd, það vantar áherslurnar á það. Ég vaknaði í morgun við fréttir sem ég er svo sem búin að bíða eftir í fimm daga, að það stígi einhver fram og réttlæti þessa hræðilegu innrás Pútíns Rússlandsforseta inn í Úkraínu með tilliti til uppgangs hinsegin samfélagsins þar í landi og það er komið. Hann hefur gert það núna, biskup rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, hann kallar þetta frjálsræði sem hinsegin fólk nýtur í Úkraínu aðför að kristnum gildum og þetta þurfi að stoppa. Það er bara komið fram. Við erum komin með þetta. Við tökum þetta á kassann, við sem tilheyrum hinsegin samfélaginu. En að öllu svörtu gríni slepptu þá er það staðreynd að það þarf að huga sérstaklega að hinsegin umsækjendum um alþjóðlega vernd og það er nokkuð sem ég tel að við ættum að leggja mikla áherslu á í þessu aðgerðaplani. Það eru blikur á lofti, uggvænleg þróun, og svo vitum við alveg hvað fylgir. Við sjáum hvert er verið að stefna ef það er ekki strax gripið til aðgerða.
Mig langar líka að nefna nokkuð sem vantar inn á kortið og það er foreldraviðurkenning samkynja para, sérstaklega kvenna, þar sem vantar enn þá nauðsynlegu breytingu á þessari gömlu pater est-reglu, að það séu löglíkur fyrir faðerni barnsins þegar barn fæðist í gagnkynjasambandi, þó að um tæknifrjóvgun sé að ræða, en þær séu ekki til staðar þegar um konur er að ræða og þess vegna þurfi þær að fara í mjög niðurlægjandi, leyfi ég mér að segja, umsóknarferli og hreinlega staðfesta það að jú, þær hafi báðar tekið ákvörðun um þetta ferli og eigi báðar að verða skilgreindar löglegir foreldrar. Þetta er dæmi um það þegar kerfið þvælist fyrir. Ég veit eftir umfjöllun allsherjar- og menntamálanefndar þegar mál um kynrænt sjálfræði var til meðferðar að það er þingmeirihluti fyrir þessu. Við viljum breyta þessu en það er einhver kerfislæg fyrirstaða þarna. Þetta mál snerist ekki um breytingu á pater est-reglunni, snerist bara um eitthvað allt annað og þar stendur hnífurinn í kúnni. Það eru svona hlutir sem hægt er að laga hér.
Mig langar aðeins að nefna 3. lið sem er um kortlagningu á stöðu og réttindum hinsegin fólks. Það er einfaldlega þannig að þessu er verið að sinna bæði af Evrópusamtökum og Samtökunum '78 hér á landi þannig að ég hefði frekar viljað sjá púðri eytt í það að líta til rannsókna sem snúa að stöðu og líðan fólks í íslensku samfélagi, t.d. trans fólks, frekar en akkúrat þessarar lagalegu úttektar. Ég held að þetta liggi bara býsna vel fyrir.
Punktur nr. 6, um hinsegin börn og ungmenni í íþrótta- og tómstundastarfi. Við þurfum að gera betur þar. Það er einfaldlega skýlaus krafa um að hinsegin börn og ungmenni eigi sama aðgang og önnur ungmenni og börn að íþróttum. Við vitum hvað það þýðir fyrir andlega og líkamlega heilsu fólks. Svo er það þessi úttekt á líðan hinsegin barna og ungmenna í skólum. Jú, við þurfum að gera betri úttekt. Það eru til úttektir sem sýna svart á hvítu að þau upplifa óöryggi, þeim líður illa. Hinsegin börn eru alls konar og hafa alls konar drauma. Þau eiga það sameiginlegt að tilheyra hinsegin samfélaginu en eru að öðru leyti jafn ólík og önnur börn og ungmenni með mismunandi drauma og þrár og skólakerfið okkar verður að mæta þessu. Það verður að mæta þessu, þessara barna vegna og samfélagsins vegna. Mér finnst það vera alveg gríðarlegt forgangsmál hjá okkur. Við erum á ágætri vegferð með hatursorðræðuna og hatursglæpina en við þurfum hins vegar að taka fastar á því. Þessar kerfisbreytingar þurfa að ganga í gegn eins hratt og hægt er.
Við þurfum að skrá hatursglæpi og ég ætla að nýta mér hér — nei, ég ætla ekki að gera það, ég verð bara að koma upp aftur af því að mig langar eiginlega að ljúka þessari ræðu á því að tala um tvennt sem mér finnst sláandi. Það er hversu mikil samsvörun er á milli hinsegin fólks og innflytjenda þegar lesið yfir þessa aðgerðaáætlun og almennt þegar við erum að tala um að bæta réttindi þessara hópa, þ.e. þau verk sem eru enn óunnin og áhrif á líðan fólks og líf almennt. Það minnir á þá nöpru staðreynd að allt of oft hefur hinsegin fólk verið eins og aðkomufólk í eigin landi og mjög misvelkomið. Þetta er sem betur fer að breytast þó að það megi gera betur og gerast hraðar, en innflytjendur, flóttafólk, hælisleitendur þurfa að njóta þess líka. Helst af öllu þurfum við að passa upp á hinsegin flóttafólk.
Hitt sem mig langar að nefna í ljósi þessara skelfilegu atburða í Úkraínu sem heimsbyggðin horfir nú upp á, allt of aðgerðalítil enn sem komið er, er að þessi saga mannréttindabrota sem Pútín Rússlandsforseti er að skrifa er fyrirsjáanleg. Það eru árásir á almenna borgara, vissulega. Þær eru réttlættar með tilvísanir í tilvist og réttindi hinsegin fólks. Það eru kerfisbundnar nauðganir á konum og stúlkum. Svo er lokað á fjölmiðla og almenna upplýsingagjöf. Þetta er saga sem við þekkjum og við megum ekki láta eins og hún komi okkur á óvart og við þurfum tíma til að bregðast við einu sinni og aftur. Eins óbærilega dapurlegt og sorglegt og þetta er þá fagna ég því að þessi umræða um aðgerðaáætlun í þágu hinsegin fólks eigi sér stað á Alþingi Íslands akkúrat í dag, í þessu myrkri sem vofir yfir heimshluta okkar, vegna þess að það er smá ljósglæta. (Forseti hringir.) Þessi ljósglæta skiptir ekki bara máli fyrir okkur Íslendinga. Við lýsum á það fólk (Forseti hringir.) sem á undir högg að sækja á þessum stöðum líka og við megum aldrei bakka og láta deigan síga.