aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þingmanni góða yfirferð. Það kveikti smáneista hjá mér þegar hún vék að stöðu innflytjenda og hliðstæðunni á milli þeirrar stöðu og stöðu hinsegin fólks; bara fjölþætt mismunun almennt, hvernig ólíkar mismunabreytur virka saman. Þá langar mig sérstaklega að tala um aðgerð 14 varðandi fjölbreytileika á vinnumarkaðnum, þar sem gera á könnun hjá fólkinu í forréttindastöðunni á vinnumarkaði, yfirmönnunum, á því hvernig hinsegin fólkið á vinnumarkaði hafi það. Ég ímynda mér að hlutföll hinsegin fólks í efstu lögum atvinnulífsins séu sennilega aðeins lægri en annars staðar, að mismunun sem fólk verður fyrir vegna hinseiginleika sé eitthvað sem fólk í forréttindastöðum innan fyrirtækja hafi kannski ekki upplifað á eigin skinni. Hvernig rímar þetta við pælingar um að fjalla ekki um fólk án fólks?
Það er hluti af þessari umræðu sem við höfum átt í dag varðandi — það er ekki hægt að kalla það samráðsleysi heldur viðbragðsleysi við samráðinu sem var viðhaft. Við erum með öll þessi samtök og alla þessa sérfræðingi á sviði hinsegin málefna sem koma með ansi góðar athugasemdir, og að ég myndi halda mjög vel viðráðanlegar, en það er bara ekkert gert með þetta. Er þetta verklag sem við getum sætt okkur við í þessum málaflokki?