aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Verklag sem við getum sætt okkur við. Það sem ég veit um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði er það að mismunun og fordómar og vanlíðan er jafnvel meiri í, ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta núna, neðri lögum vinnumarkaðar, ekki í stjórnendastöðum eða sérfræðistöðum, það er annars staðar. Hvort sem það er út af því að það er mögulega yngra fólk sem verður fyrir því, síður menntað — ég átta mig ekki á þeim veruleika. Ég veit að samtökin hafa skoðað þetta. Ég veit t.d. að það er launamunur hinsegin fólks, það hefur verið kannað. Það er alveg klárt mál að þetta eru hlutir sem þarf að kafa vel ofan í og það er náttúrlega algerlega ólíðanlegt þegar við erum komin á þann stað með samfélagið svona almennt að hinsegin fólk losni í daglegu lífi við fordóma að mestu leyti, að það mæti þeim á vinnumarkaði. Það gengur náttúrlega ekki upp. Ég verð að viðurkenna að það sló mig akkúrat þetta, að kanna viðhorf og þekkingu atvinnurekanda á stöðu og aðgengi hinsegin fólks á vinnumarkaði. Mér finnst það ekki slæm hugmynd. Mér finnst það mikilvægt. En það má ekki vera það eina sem við skoðum þegar kemur að þessu og ég hef nefnilega sjálf bæði rekið mig á það í störfum mínum á vinnumarkaði og síðan heyrt af því í samtölum við fólk að það ríkir ákveðið þekkingarleysi. Það eru ekki ætlaðir fordómar en það er þekkingarleysi á því að það þurfi kannski að gæta að ákveðnum hlutum. Það er líka fylgifiskur þess að vera kominn á ákveðinn stað með samfélagið. Þess vegna held ég að þetta sé mikilvægt. (Forseti hringir.) Ég ímynda mér að út úr svona könnun kæmi að það sé allt í góðu (Forseti hringir.) og menn viti allt sem þeir þurfi að gera. Síðan er kannað viðhorfið hjá hinsegin fólki sem segir allt aðra sögu (Forseti hringir.) og það eru orðnar mikilvægar upplýsingar þegar það er síðan borið saman.
(Forseti (DME): Ég minni hv. þingmenn á að virða ræðutímann. )