152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[16:20]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, ekki skilja mig þannig að ég vilji ekki að gerð sé könnun á stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. En í ljósi þess að stéttskipting á vinnumarkaði og hinseginleiki eru tvær mismunabreytur sem ég ímynda mér að magni hvor aðra upp, þá skiptir svo miklu máli að ekki sé bara verið að kanna viðhorf og þekkingu atvinnurekendanna sjálfra. Þá ertu bara með hálfa myndina og ekki þann hluta myndarinnar sem skiptir mestu máli.

Hv. þingmaður talaði einnig í framsögu sinni um heildaryfirbragð áætlunarinnar. Ég fékk nefnilega þá tilfinningu þegar ég las þetta skjal fyrst að sendur hefði verið hóppóstur á öll ráðuneyti og þau verið beðin um að henda í púkk einni hugmynd þannig að sjávar- og landbúnaðarráðuneytið segir: Heyrðu, við skulum kanna hinseginleika í sjávar- og landbúnaðarráðuneytinu. Svo virðist heilbrigðisráðuneytið kannski ekki hafa verið með kveikt á öllum perum þannig að þau bættu inn tveimur aðgerðum eftir samráðsferlið. Það vantar heildarsýn. Eins og bent var á varðandi þessa könnun á fjölbreytileika á vinnumarkaði þá er allt önnur nálgun þar en í könnunum í menntakerfinu þó að, eins og hv. þingmaður kom svo vel inn á, staðan sé kannski nógu vel þekkt innan menntakerfisins til að hægt sé að stíga næsta skref. En næsta skref er aðeins flóknara og væntanlega aðeins dýrara líka vegna þess að þessar kannanir í menntakerfinu er hægt að samkeyra með alls konar könnununum á stöðu barna í skólakerfinu t.d., en ef við ætlum að fara að breyta hlutunum eitthvað þá þurfum við fræðslu. Þá þurfum við efni. Þá þurfum við mannskap. Sjáum við hér vandann í þessari aðgerðaáætlun, að sjálfar aðgerðirnar eru einhvern veginn næsta vers, þær bíða næstu áætlunar?