Þetta aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég held að hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hafi mögulega hitt naglann á höfuðið þarna, það er nefnilega auðveldara að kanna núverandi stöðu. Það er einhvern veginn hægt að fylla svolítið mikinn tíma og nota mikinn mannafla í svoleiðis verkefni en síðan þarf að leggja mat á stöðuna og grípa til aðgerða. Ég ímynda mér að mögulega sé sérstaklega freistandi að kanna stöðu þar sem við vitum að við erum betur stödd en margir aðrir af því að það er jákvætt. Við komum vel út úr slíku. Ég er ekki þar með að segja að við eigum ekki að vita hvar við stöndum þegar við grípum til aðgerða. En það er alveg rétt, það er ástæða til þess núna að leggja áherslu á beinar aðgerðir. Við búum svo vel að eiga hagsmunasamtök, Samtökin '78, sem ekki eingöngu eru gríðarlega öflug og sterk sjálf, og ég ætla að taka svo djúpt í árinni að segja að þetta séu sterkustu mannréttindasamtök sem við eigum hér á landi, heldur eru í miklu og góðu sambandi við alþjóðasamtök. Þau hafa þessar upplýsingar mikið til og ég myndi treysta þeim til að svara mjög mörgum af þeim spurningum sem varpað er upp þarna. Ég veit að allsherjar- og menntamálanefnd á eftir að fá þetta verkefni, þetta mál til umfjöllunar, og ég treysti því að áherslan verði á að snúa þessu svolítið, að leggja áhersluna á framhaldið, á næstu skref, á að nota þau gögn sem fyrir eru og byggja áfram. Ég veit ekki, færa þetta úr skrifræðisátt og e.t.v. aðeins meira yfir í pólitíkina. Það er kannski líka það sem vantar. Það er einhugur hér á þingi um það sem við ætlum að gera. Það eru ákvæði í stjórnarsáttmála. Þingið styður við þetta. Þetta snýst ekki um nein pólitísk álitamál, ekki að mér vitandi. (Forseti hringir.) Við þurfum bara að gera þetta. Margt af þessu kostar ekki mikinn pening að gera en er gríðarlega dýrt að láta ógert.