aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þessa aðgerðaáætlun. Ég veit að hæstv. forsætisráðherra brennur fyrir jafnrétti og brennur fyrir því að gera betur og þess vegna langar mig að hvetja hæstv. forsætisráðherra til að hlusta á þá gagnrýni og hvatningu sem hefur komið fram hér í dag sem nákvæmlega það, sem hvatningu til þess að laga það sem kannski má bæta. Ég trúi því, rétt eins og hv. þingmenn hafa sagt hér á undan, að það sé mikill vilji innan þingsins til þess að gera góða hluti í þessum málum og til þess að gera betur en hér er lagt upp með.
Mig langar líka að þakka sérstaklega þeim hv. þingmönnum sem hafa talað um þessi mál af eigin reynslu. Af því getum við hin, sem höfum ekki þessa reynslu, lært og tekið það til okkar hvað megi betur fara. Mig langar að taka undir þau hvatningarorð sem margir hv. þingmenn fóru með áðan, að það vanti fleiri aðgerðir. Við þurfum ekki að gera endalausar kannanir, hafa endalausar nefndir. Stundum þurfum við bara að hafa endalausar aðgerðir og aðgerðaáætlanir eiga að vera um aðgerðir. Dæmi: Það er talað um að skoða líðan barna og athuga hvað eigi að gera í menntakerfinu. Það er voða einfalt sem þarf að gera. Það þarf í fyrsta lagi að breyta námskránni og laga hana að breyttum tímum. Mig langar að nota orð krakkanna í Menntakerfinu okkar sem sendu inn umsögn á síðasta ári. Þau sögðu, með leyfi forseta:
„Við fáum enga fræðslu um kynhneigð né kynfræðslu. Það er alls ekki í lagi því við umgöngumst hinsegin, kynsegin og allskonar fólk á hverjum degi. Við þörfnumst hinseginfræðslu því að það er fullkomlega eðlilegt að vera allskonar, það er ekki í lagi að hafa þessa fræðslu sem lítinn kafla í náttúrufræðibók árið 2020. Það á að kenna jafn mikið um hinsegin, kynsegin og gagnkynhneigð sambönd og við ættum auðvitað að tala meira um alla þá kynhneigð sem til er, því það eru allt of margir sem vita ekki hvað það er og niðurlægja kynhneigðir vegna þess að fyrir þeim er það óvenjulegt, þess vegna mælumst við til að það sé nauðsynlegt að fá hinseginfræðslu.“
Ég veit að hæstv. forsætisráðherra var á barnaþingi í síðustu viku, rétt eins og ég. Þetta er nákvæmlega það sem krakkarnir þar voru að segja. Hlustum á þau, lögum námskrárnar og vinnum í þessu saman.
Við höfum líka heyrt hvað þarf að gera í heilbrigðiskerfinu í stöðu trans fólks. Ég veit að ef ríkisstjórnin kemur með aðgerðaáætlun þar stöndum við öll í þinginu með henni. Þegar kemur að geðheilbrigðismálum fyrir börn, trans börn, hinsegin börn, kynsegin börn, ef hæstv. forsætisráðherra kemur með aðgerðaáætlunina og segir að það kosti svona mikið, þá veit ég að við munum öll hér inni greiða atkvæði með því.
Að lokum um alþjóðlega vernd: Hæstv. forsætisráðherra sagði: Það þarf að huga sérstaklega að öllum þeim hópum sem eru í hættu þar, hvort sem það er hinsegin, kynsegin, fatlaðir eða aðrir. Ég er hjartanlega sammála hæstv. forsætisráðherra í því. Við þurfum að taka sérstaklega vel á móti þessu fólki. En því miður erum við ekki að gera það núna, því miður. Við höfum gert vel þegar kemur að kvótaflóttafólki en þegar kemur að umsækjendum um alþjóðlega vernd er svo ótrúlega margt sem við getum bætt. Ég trúi ekki öðru en að það sé eitthvað sem hæstv. forsætisráðherra er líka tilbúin til að laga. Það bárust góðar umsagnir frá mörgum aðilum um þetta mál og ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til þess að vinna í samstarfi við forsætisráðuneytið og hæstv. forsætisráðherra og í samstarfi við þá mörgu góðu umsagnaraðilar sem hafa komið með tillögur um umbætur og að í meðförum þingsins sýnum við öll sem eitt að þetta eru mannréttindi sem við erum tilbúin að berjast fyrir, fyrir því sem þurfi að breyta. Við erum tilbúin til að laga hlutina vegna þess að við sem höfum ekki þurft að ganga í gegnum marga af þessum hlutum getum stundum ekki áttað okkur á því hversu mikilvægt það er að við stöndum öll saman.