152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[16:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Eins og skýrt hefur komið fram þá felur þessi aðgerðaáætlun aðeins að mjög takmörkuðu leyti í sér áform um efnislegar breytingar, kerfisbreytingar, heldur snýst hún fyrst og fremst um að kortleggja hitt og þetta, að kanna hlutina frekar en að breyta þeim. Hér er ekki minnst á fækkun á biðlistum eftir trans tengdri heilbrigðisþjónustu, ekki minnst á það hvort og hvernig sérfræðiþekking hjá trans teymum Landspítala á BUGL verði uppfærð til framtíðar og hvernig heilbrigðiskerfið verði eflt í þágu hinsegin fólks. Það eru engar efnislegar breytingar boðaðar til að bæta líðan hinsegin barna í skólakerfinu. Það er látið eins og hinsegin flóttafólk sé ekki til og það er ekkert fjallað um fjölþætta mismunun, hvernig skuli brugðist við henni.

Hæstv. forsætisráðherra sagði í ræðu í dag að Samtökin '78 væru ánægð með áætlunina og það hefði verið haft gott samráð við þau. Það er hins vegar alveg ljóst að Samtökin '78 settu líka fram gagnrýni á þetta plagg, kölluðu eftir ákveðnum úrbótum og bentu á atriði sem vantaði og er ekki að sjá að brugðist hafi verið við þeim ábendingum að neinu ráði. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson fór vel yfir þetta í þingræðu áðan. Ítarlegasta gagnrýnin kemur kannski fram í umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar. Þar er bent á að það vanti umfjöllun um efnislegar breytingar, kerfisbundnar breytingar, og það sé ekki að sjá að unnið verði með markvissum hætti að því að efla þekkingu innan stjórnkerfisins alls á hinsegin málefnum. Það sé lögð áhersla á að skoða og kanna hitt og þetta þegar réttara væri að ráðast í framkvæmdir og breytingar með hliðsjón af þeirri þekkingu sem liggur fyrir nú þegar, þekkingu á því hvar pottur er brotinn o.s.frv. Reykjavíkurborg benti líka á að það vanti haldfastar aðgerðir í menntakerfinu og í heilbrigðiskerfinu. Hver er stefna ríkisins með tilliti til þess að skapa og viðhalda hinsegin þekkingu innan Stjórnarráðsins? Er stefnan áframhaldandi útvistun á hinsegin verkefnum eða á kannski líka að vinna að því að byggja upp og viðhalda þekkingu innan kerfisins og leita þannig leiða til að koma á kerfisbreytingum og samþætta hinsegin málefni við önnur verkefni? Ég held að þetta séu mjög réttmætar spurningar og ég tek líka undir þá hvatningu mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar að sem allra fyrst verið komið á fót sjálfstæðri mannréttindastofnun með bolmagn til að gæta að réttindum hinsegin fólks og þar sem starfa sérfræðingar í hinsegin málefnum.

Forsætisráðherra fer með mannréttindamál og jafnréttismál og ég hélt í einfeldni minni, þegar ég byrjaði að lesa þessa áætlun, að nú myndi forsætisráðherra, sem ég veit að brennur fyrir jafnrétti og hefur sýnt það hér með ýmsum þingmálum í gegnum tíðina, sýna sínar bestu hliðar sem stjórnmálamaður og að nú fengjum við að sjá vandaða og ítarlega aðgerðaáætlun þar sem væri skýrt hvaða raunverulegu kerfisbreytingar yrði ráðist í á þessu kjörtímabili en ekki bara svona snakkað um að það þurfi að kanna hitt og þetta. En það var einhver óskhyggja í mér. Þetta er bara ofboðslega, eins og ég sagði áðan, rýrt plagg, plagg sem umsagnaraðilar og þingmenn hér í dag hafa tætt í sig.

Nú bíður bara allsherjar- og menntamálanefndar það verkefni að vinna þetta betur og tryggja að Alþingi geti svo samþykkt þessa þingsályktunartillögu með stolti og stjórnvöld hrint henni í framkvæmd af fullum krafti.