152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[16:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég bara þakka fyrir ágæta umræðu og skynja mikinn stuðning við úrbætur í málefnum hinsegin fólks sem er kannski stóra verkefnið okkar á þingi. Hér hefur verið spurt um ýmsar athugasemdir. Ég verð að byrja á því að segja að Samtökin '78, af því að það er búið að spyrja svo mikið um þetta samráð, voru í þeim hópi sem vann þessa tillögu. Eðlilega vilja þau gera enn meira. Ég skil það bara mjög vel. Það er hlutverk þeirra sem öflugur talsmaður hinsegin fólks í samfélaginu en hins vegar hafa þau fagnað þessari áætlun, hún er sú fyrsta sinnar tegundar, og þau voru í hópnum sem vann að henni. Það eru alls konar athugasemdir sem koma fram, m.a. einmitt um stofnun sjálfstæðra mannréttindastofnunar sem hér var nefnd. Því er til að svara að það verkefni er á ágætu spori. Það sem stendur til á þessu ári er að fara að vinna grænbók um stöðu Íslands í mannréttindamálum sem verður í raun og veru undirstaðan fyrir frumvarp um óháða mannréttindastofnun sem uppfyllir Parísarviðmiðin þannig að við getum staðið við þau fyrirheit í stjórnarsáttmála. En eftir að hafa farið yfir þetta verkefni var það mat mitt að við þyrftum ítarlegri umræðu í samfélaginu, samráð við almenning og sérfræðinga og aðra aðila til þess að við hefðum svona stóru myndina í mannréttindamálum áður en við færum fram með frumvarp. Mér finnst ágætt að nefna það.

Hér hefur verið kallað eftir því og vitnað í athugasemdir um málsvara hinsegin fólks í stjórnkerfinu og að það skorti sérfræðiþekkingu. Ég fór yfir það í ræðu minni áðan. Skrifstofa jafnréttismála var sett á laggirnar 2019. Fyrir þann tíma var engin slík eining í stjórnkerfinu. Þar höfum við verið að byggja upp þessa þekkingu á hinsegin málefnum og ég held að hún hafi birst í því sem hefur verið gert á undanförnum árum og þá sérstaklega í löggjöfinni um kynrænt sjálfræði. Spurt var um verkefni um fjölbreytileika á vinnumarkaði. Þetta varð niðurstaða þessa samráðshóps, vegna þess að það hefur ekki verið gert, BHM og Samtökin '78 hafa gert með sér samkomulag um könnun á stöðu hinsegin launafólks sem stendur yfir. Þeim fannst mikilvægt að horfa á hina hliðina, þ.e. viðhorf atvinnurekenda. Ég held að það sé líka mikilvægt að við reynum að ná fram sem heildstæðastri mynd. Margt af því sem hér er rætt sem varðar þá sérstaklega heilbrigðisþjónustu fyrir trans fólk er stórmál. Það er mál sem fyrst og fremst kallar á að fjármagn sé nægjanlegt hjá heilbrigðiskerfinu, og sérstaklega Landspítalanum, til að geta sinnt því. Ég veit að heilbrigðisráðherra er að sjálfsögðu mjög meðvitaður um þá stöðu. Það var hins vegar ekki metið svo að það væri kannski endilega aðgerð í aðgerðaáætlun heldur er það bara eitthvað sem á að fylgja í lögunum, að þjónusta við hæfi sé veitt.

Rætt var sérstaklega um barnalögin þar sem segir í greinargerð að með lögum um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, sem var frumvarp frá dómsmálaráðherra á þeim tíma, sem tóku gildi 8. júní 2021, var bætt við ákvæðum sem mæla fyrir um foreldrastöðu trans fólks og fólks með hlutlausa kynskráningu. Breytingin veitti þeim sem eru skráðir í hjúskap stöðu foreldra þeirra barna sem eru alin í þeim hjúskap.

Mat lögfræðinga minna er nú ekki að hér sé farið rangt með, eins og var haldið fram í þingsal, en hins vegar var deilt um það hvort afnema ætti pater est-regluna og ekki voru allir á eitt sáttir við hvernig málinu lauk. Ég hins vegar fagna því að allsherjar- og menntamálanefnd taki þetta mál aftur til umræðu. Mér finnst það hið besta mál en tel að rétt sé farið með í greinargerðinni.

Ég fór yfir áðan af hverju í raun og veru við horfum á það að 37. gr. eigi að ná utan um alla viðkvæma hópa þegar rætt er um útlendingalögin.

Hér var líka mikið rætt um rannsóknir. Það er svo að það hefur ekki verið ráðist í allsherjarrannsókn á stöðu hinsegin fólks á Íslandi. Það er mjög mikilvægt að við höfum heildarmyndina til að geta unnið markvisst að réttarbótum og samfélagslegum framförum. Þegar við ræðum kortlagningu slíkra mála er ekki eingöngu verið að horfa á lagalega stöðu heldur ekki síður félagslega stöðu, aðgengi að félags- og heilbrigðisþjónustu og annað slíkt.

Málefni um hinsegin fræðslu, af því að hér var vitnað til þess og rætt að það þyrfti að breyta námskrá — ég leyfi mér að minna á að í námskránni er kveðið á um jafnréttisfræðslu þar sem sérstaklega er fjallað um fræðslu um kynhneigð en kannski þurfum við að velta því fyrir okkur hvort við erum að fylgja námskránni. Ég minni líka á, af því að dagurinn í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna, að ákvæði um jafnréttismenntun í skólum komu inn í lög 1976. Þau voru hins vegar ekki sett í námskrá fyrr en 2011 þegar sömuleiðis ákvæði um menntun og fræðslu um kynhneigð komu inn, þegar ég gegndi embætti menntamálaráðherra. Þannig að ég nefni það hér að stundum er líka mikilvægt að framfylgja og framkvæma það sem við setjum á blað. Ég var nú í Borgarholtsskóla í hádeginu þar sem var búið að vera að fjalla um jafnrétti og jafnrétti í íþróttum allan morguninn. Breytingarnar sem hafa orðið á skólunum á þeim tíu árum síðan þetta var sett í námskrá eru mjög miklar. En ég tek undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni sem talaði um þessi skýru skilaboð sem við fengum á barnaþingi þar sem kallað var eftir aukinni fræðslu. Þá þurfum við auðvitað að horfa til þess, og það er það sem við erum m.a. að ræða hér, hvort það sé líka þörf á fræðslu fyrir þau sem starfa með börnunum til þess að háleit markmið komist til framkvæmda og verði ekki bara orð á blaði.

Ég ætla ekki að lengja umræðuna. Ég heyri að þingmenn vilja ganga lengra og vera metnaðarfyllri og ekki mun standa á mér í því verkefni. En ég held líka að við þurfum að horfa á það að þessi áætlun var unnin, eins og ég segi, í mjög góðu samráði við hagsmunasamtök hinsegin fólks og ég held að við séum öll meðvituð um að þetta er fyrsta áætlunin sem við gerum í þeim efnum. Það verður ákveðið lærdómsferli, bæði að fara í gegnum hana á þinginu, í þinglegri meðferð, og hvernig við síðan vinnum þetta áfram.