aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.
Frú forseti. Ég fór áðan yfir fjármögnun trans teymanna og vinnu í heilbrigðisráðuneytinu í þeim efnum. Hvað varðar bæði endurskoðun á reglugerð um hollustuhætti og aðgengi að kynhlutlausum salernum þá hefur komið fram að sú vinna stendur yfir í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og sömuleiðis á reglugerðinni um hollustuhætti á sund- og baðstöðum og um baðstaði í náttúrunni. Þetta eru allt breytingar sem ætlað er að fylgja eftir og innleiða lögin um kynrænt sjálfræði. Síðan eru það aðgengismál hinsegin fólks, bæði í opinberum rýmum og á vinnustöðum, en þau hafa lengi verið mikið baráttumál. Það er ekki síst mikilvægt fyrir trans fólk sem er jaðarsettur viðkvæmur hópur. Þannig að verið er að horfa á það að við gerum úttekt á þessum málaflokki þegar kemur að aðgengi þessara hópa með það að markmiði að samræma reglur um aðgengi trans fólks á vinnustöðum og í almenningsrýmum vegna þess að það þarf að ná fram aukinni samhæfingu við innleiðingu laganna um kynrænt sjálfræði. Ég segi það bara og ítreka að ég tel að við hefðum átt alveg gríðarlega gott samstarf við samtökin og held að allar aðgerðirnar í þessari áætlun, sem sumir hv. þingmenn hér keppast við að gera lítið úr, muni skipta verulegu máli fyrir þennan hóp í samfélagi okkar en ekki síður fyrir samfélagið sem heild.