152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[16:48]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að verið sé að uppfylla lög um kynrænt sjálfræði varðandi aðgengi fólks með hlutlausa skráningu kyns að sjálfsagðri hreinlætisaðstöðu á vinnustöðum eða í háskólanum eða hvar það er. Það sem ég er að benda á er að þetta er eitthvað sem átti að klára fyrir svona þremur árum. Þetta er eitthvað sem ráðherrann sjálfur sagði í september 2020 að stæðu vonir til að yrði flýtt. Nú er kominn mars 2022. Það er dálítið langt liðið fyrir fólkið sem t.d. stendur í eilífu stappi í háskólunum okkar þar sem fólk getur ekki nýtt sér salernisaðstöðu nema í fjórðungi húsnæðis háskólans. Það er staðan í stærstu menntastofnunum landsins. Auðvitað vilja Samtökin '78 gera betur og það nær t.d. yfir það einfaldlega vegna þess að þetta er ólíðandi staða sem hefur viðgengist allt of lengi á vakt hæstv. ráðherra.

Svo verð ég að nefna varðandi aðgerð 14, um könnun á fjölbreytileika á vinnumarkaði, vegna þess að hér í seinni ræðu sinni sagði hæstv. ráðherra að það hefði orðið niðurstaðan að forma aðgerðir svona, að þá er einmitt ágætt að benda á greinargóða umsögn Samtakanna '78 um að það þurfi að kanna stöðu og aðgengi hinsegin fólks á vinnumarkaði, að sjálfsögðu, en því verði best náð fram með því að ræða líka við hinsegin fólk á vinnumarkaði, ekki bara atvinnurekendurna sem talað er um í áætluninni. Mér finnst þessi stéttablinda dálítið sláandi í þessari aðgerð.