152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

vísitala neysluverðs.

279. mál
[18:15]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Ég stend hér fyrir hv. þm. Ingu Sæland sem er fyrsti flutningsmaður þessa frumvarps til laga um breytingu á lögum um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995, með síðari breytingum, vísitala neysluverðs án húsnæðis. Flutningsmenn ásamt Ingu Sæland eru sú sem hér stendur, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

Í greinargerð með frumvarpinu stendur, með leyfi forseta:

„Verðbólga mælist nú langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Stærsti einstaki orsakavaldurinn er sífellt hækkandi húsnæðisverð. Þetta veldur keðjuverkandi áhrifum sem leiða til þess að greiðslubyrði heimilanna þyngist og lánin hækka til muna. Verðbólga mælist nú 5,7% en mælist 3,7% ef húsnæðisliðurinn er tekinn út.“

Þarna þarf að uppfæra frá því að greinargerðin var skrifuð, verðbólgan er 6,2% í dag og 4,2% ef húsnæðisliðurinn er tekinn út.

„Helstu greiningaraðilar spá áframhaldandi hækkunum á húsnæðisverði, m.a. vegna framboðsskorts á húsnæði. Því er útlit fyrir verulegar hækkanir á vísitölu neysluverðs á næstu misserum vegna hækkandi húsnæðisverðs. Það vita allir hvaða skelfilegu afleiðingar verðbólgan hafði á verðtryggð lán íslenskra fjölskyldna landsins í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Þar tvöfölduðust skuldir heimilanna á einni nóttu og hátt í 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín. Þetta má aldrei gerast aftur.

Til að sporna gegn hörðustu áhrifum verðbólgunnar á heimilin er lagt til að húsnæðisliðurinn verði felldur út úr vísitölu neysluverðs. Þetta fyrirkomulag tíðkast víða, t.d. í verðbólgumælingum ESB. Með slíkri breytingu má draga verulega úr mældri verðbólgu og þar með hörðustu áhrifum vísitöluhækkana á fjárhag fjölskyldufólks, sérstaklega þeirra sem sitja fastir í viðjum verðtryggðra húsnæðisskuldbindinga.

Hagstofan heldur þegar til haga vísitölubreytingum án húsnæðis og því ætti stofnunin að geta breytt framkvæmdinni til samræmis við frumvarp þetta án mikillar fyrirhafnar.“

Greinargerðin segir í raun flest sem segja þarf um hvers vegna á að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni. En fyrsta spurningin sem við þurfum að spyrja okkur er: Af hverju er hann þar? Samkvæmt íslenskri nútímaorðabók er neysluvara skilgreind sem vara sem er framleidd til neyslu. Ef ég slægi upp ensku skilgreiningunni á „consumer products“, með leyfi forseta, þá kæmi upp í lauslegri þýðingu, þar sem þingmálið er íslenska, vara sem er keypt af einstaklingum eða heimilum til neyslu — til neyslu. Það er erfitt að halda því fram að húsnæði sé neysluvara. Húsnæði er nauðsyn sem fólk hefur ekki val um að kaupa. Öll þurfum við þak yfir höfuðið. Hins vegar er neysla það sem snýr að afnotum af húsnæðinu, eins og t.d. rafmagn og hiti, en ekki húsnæðið sjálft. Það eru því engin rök fyrir því að skilgreina húsnæði sem neysluvöru. Allt annað sem er í vísitölu neysluverðs eru smærri hlutir sem saman mynda stóra upphæð. Í þrautum eru stundum settar fram myndir þar sem ein passar ekki. Þar er t.d. mynd af osti, mjólk, húsi og rjóma og spurt hvað eigi ekki heima þar. Svarið er augljóst. Ef sams konar mynd væri sett upp með neysluvísitölunni blasir við að húsnæðisliðurinn passar engan veginn inn í hana.

Flokkur fólksins hefur lengi barist fyrir því að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni og það er ánægjulegt að sjá að þessi skoðun er að öðlast meira fylgi. Það var því gott að sjá formann Framsóknarflokksins taka undir að hann væri hlynntur slíkri breytingu en á sama tíma var ótrúlegt að horfa á hann skella skuldinni á Hagstofu Íslands. Hann ætti að vita betur, enda vísaði Hagstofa Íslands þessum orðum ráðherra beint til föðurhúsanna og benti honum í allri vinsemd á að það væri í höndum löggjafans að ákveða hvort húsnæðisliðurinn væri í vísitölunni. Þetta frumvarp er að bregðast við þeim orðum með því að leggja þetta í hendur löggjafans. Svo því sé haldið til haga þá reiknar Hagstofa Íslands vísitöluna nú þegar bæði með og án húsnæðisliðarins og hefur lengi gert, sem skýtur enn frekari stoðum undir að húsnæðisliðurinn eigi alls ekki heima í vísitölunni sem neysluvara, enda er húsnæði það alls ekki. Þessi breyting myndi því ekki auka kostnað eða vinnu Hagstofunnar. Alþingi þarf bara að fara að vinna fyrir neytendur, heimilin í landinu og taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Við sem viljum taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni erum krafin um rök en í raun ætti þetta að vera öfugt. Það þarf að færa mjög sterk rök fyrir því að hafa húsnæðisliðinn í vísitölunni.

Förum aðeins yfir þetta. Í fyrsta lagi mælist verðbólgan nú langt fram yfir verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og þar er stærsti einstaki orsakavaldurinn sífellt hækkandi húsnæðisverð. Nú er verðbólgan 6,2% en án húsnæðisliðarins væri hún 4,2%. Heimilin munar um tvö heil prósentustig. Þetta veldur keðjuverkandi áhrifum sem leiða til þess að greiðslubyrði heimilanna þyngist og lánin hækka til muna. Í öðru lagi spá helstu greiningaraðilar áframhaldandi hækkunum á húsnæðisverði, m.a. vegna framboðsskorts á húsnæði. Því er útlit fyrir verulegar hækkanir á vísitölu neysluverðs á næstu misserum vegna hækkandi húsnæðisverðs. Skortur á framboði á húsnæði er ekki fólkinu í landinu að kenna. Þar þurfa stjórnvöld, bæði sveitarstjórnir og ríkisstjórnin, að líta í eigin barm. Hækkununum sem skortur á húsnæði veldur á alls ekki að velta yfir á heimili landsins sem bera enga sök á þessu ástandi. Það að álögur hækki á almenning og heimili vegna klúðurs sem stjórnvöld bera ábyrgð á, hvort sem um er að ræða sveitarstjórnir eða ríkisstjórnina, nær ekki nokkurri átt og er hreinlega ekki í boði. Það er ekki fyrirsjáanlegt að húsnæðisverðið lækki á næstunni. Ég hef frá fyrstu hendi upplýsingar um hvernig staðan er raunverulega fyrir þau sem eru að leita sér að húsnæði um þessar mundir. Það má helst líkja markaðnum við úlfagryfju þar sem tugir skoða og jafnvel bjóða í hverja íbúð og þær seljast langt yfir ásettu verði, jafnvel svo nemur 15%. Húsnæðisverð hlýtur því að fara hækkandi á næstu vikum, mánuðum og árum og hafa áhrif á vísitöluna. Enginn græðir í raun á þessu og fólk þarf að skuldsetja sig sífellt meira til að eignast húsnæði.

Ég ætti ekki að þurfa að rekja áhrif verðbólgu á verðtryggð lán en því miður eru ekki margir sem átta sig á hvernig þau í rauninni virka og hvernig snjóboltaáhrif þeirra eru. Verðbætur bætast ofan á höfuðstól lánanna í hverjum mánuði og hækkun á höfuðstól verðtryggðra lána vegna tímabundinnar verðbólgu mun þess vegna hækka lánið og afborganir í veldisvexti út lánstímann. Þar munar um hvert prósentustig og það að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni myndi því skipta miklu máli til langs tíma fyrir þessar fjölskyldur. Það vita allir hvaða skelfilegu afleiðingar verðbólgan hafði á verðtryggð lán íslenskra fjölskyldna í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Við skulum ekki láta þá sögu endurtaka sig, svo ekki sé nú talað um þau sem eru á leigumarkaði. Greiðsluseðill sem ég hef séð var upp á 280.000 kr. í janúar 2020. Sama fólk í sömu íbúð greiddi 310.000 kr. í leigu í janúar á þessu ári og miðað við þá verðbólgu sem nú er fyrirsjáanleg mun leigan þeirra væntanlega hækka um 20.000 kr. í viðbót á þessu ári. Miðað við verðbólguspár, heimsfaraldur og stríð í heiminum auk ört hækkandi húsnæðisverðs, sem hefur áhrif á meðan húsnæðisliðurinn er enn þá í vísitölunni, er staðan ekki að fara að batna. Miðað við allt þetta megum við þakka fyrir ef verðbólgan fer ekki í tveggja stafa tölu áður en langt um líður. Og hvað verður þá um fólk í þessari stöðu sem þegar stendur frammi fyrir því að eiga ekki fyrir leigunni eins og hún er því að þessir peningar eru einfaldlega ekki til?

Það að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni bjargar ekki öllu en væri viðspyrna gegn hörðustu áhrifum verðbólgunnar á heimilin. Þarna mættum við taka ESB okkur til fyrirmyndar frekar en í mörgu öðru því að í verðbólgumælingum ESB er húsnæðisliðurinn ekki í vísitölunni. Þar er reyndar heldur engin verðtrygging á skuldbindingum heimila frekar en annars staðar á Vesturlöndum.

Ég hef lagt mesta áherslu á húsnæðiskostnað heimilanna enda er það langstærsti einstaki útgjaldaliður þeirra en áhrifin á vöruverð, raunverulegar neysluvörur, munu líka vera mikil. Þannig að hækkun á verðbólgu kemur að heimilunum úr öllum áttum og þá sérstaklega þeim sem annaðhvort eru á leigumarkaði eða með verðtryggð lán.

Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja Framsóknarflokkinn til að standa fast á því að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni en bæði formaður hans og varaformaður hafa talað á þeim nótum. Það skiptir miklu máli að Framsóknarflokkurinn sýni fram á afl sitt og áhrifin innan ríkisstjórnarinnar, ekki hvað síst eftir þann mikla kosningasigur sem þau unnu með slagorðinu fjárfestum í fólki og að hagur einstaklingsins sé hagur samfélagsins. Núna þarf svo sannarlega að taka hag einstaklinga fram yfir hag fjármagnsafla enda er það, eins og Framsóknarflokkurinn segir, hagur samfélagsins að einstaklingar þurfi ekki að berjast í bökkum og hafi það sem best. Þar skiptir þessi litla aðgerð að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni alveg gríðarlega miklu máli. Ég hvet því Framsóknarflokkinn til að nota þetta tækifæri til að sýna fram á að kosningafrasar þeirra séu ekki bara orðin tóm.

En það að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni er ekki langtímalausn. Vandinn er í rauninni ekki vísitalan heldur að hún hafi áhrif á lánin okkar því að annars skipti það hvort húsnæðisliðurinn væri í vísitölunni eða ekki litlu sem engu máli. Lausnin, með stórum stöfum, felst í því að afnema verðtryggingu á skuldum heimilanna og Flokkur fólksins hefur þegar lagt fram frumvarp þess efnis sem bíður þess að komast á dagskrá. En þar til þangað er komið skiptir það hvort húsnæðisliðurinn er í vísitölunni eða ekki höfuðmáli. Þetta frumvarp er einfaldlega til að takmarka það tjón sem verður af völdum þeirrar verðbólgu sem fyrirsjáanleg er. Ég endurtek að það þarf að færa virkilega sterk rök fyrir því að hafa húsnæðisliðinn áfram í vísitölunni en ekki öfugt. Með þessari litlu breytingu má draga verulega úr mældri verðbólgu og þar með úr hörðustu áhrifum vísitöluhækkana á fjárhagsstöðu fjölskyldufólks, sérstaklega þeirra sem sitja föst í viðjum verðtryggðra húsnæðisskuldbindinga eða eru á leigumarkaði.

Mig langar einnig að minna ríkisstjórnina á að í haust eru kjaraviðræður: Hvernig ætlar ríkisstjórnin að búa í haginn fyrir þær? Samkvæmt Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, þarf 50.000 kr. launahækkun til að mæta þeirri 30.000 kr. hækkun á leigu sem fyrrnefnd fjölskylda hefur orðið fyrir. Hækki leigan um 20.000 kr. í viðbót, sem alveg má gera ráð fyrir miðað við verðbólgu og ástand í heiminum og spár og allt það, þarf 80.000 kr. launahækkun til að mæta því. Hann segir að hann muni sækja hverja einustu krónu. Er ríkisstjórnin til í kjaraviðræður á þeim grunni eða ætlar hún þá að fara að krefja verkalýðshreyfinguna um að sýna skynsemi í kröfum sínum? Við því vil ég segja: Þessar kröfur eru skynsamlegar því að það væri hrein heimska að berjast fyrir kröfum sem engan veginn duga til að mæta auknum útgjöldum fjölskyldna, ekki hvað síst ef ríkisstjórnin hefur ekki gert neitt til að hamla áhrifum verðbólgu á afkomu þeirra. Það að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni er alger lágmarksaðgerð til að hamla áhrifum verðbólgunnar á heimili landsins. Með þessari einföldu aðgerð væri slegið á verðbólguna og keðjuverkandi áhrif hennar eins og t.d. hækkandi leiguverð og vexti. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að þessu máli verði ekki veitt brautargengi af þingheimi og treysti sérstaklega, í ljósi fyrri yfirlýsinga, á Framsóknarflokkinn og að tal hans um að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni sé ekki orðin tóm. Þetta er aðgerð sem skiptir okkur öll miklu máli, ekki síst vegna húsnæðiskostnaðar, en einnig til að hamla hækkunum á neysluvöru.