152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

framtíð Íslands í svæðisbundinni, fjölþjóðlegri samvinnu.

87. mál
[19:47]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Ég skal hafa þetta stutt þar sem ég veit að það eru aðrir þingmenn að bíða eftir að komast að með sín mál. En mig langaði bara að fjalla almennt um fjölþjóðlega samvinnu, hvort sem það eru þrjú ríki, fimm ríki eða 27 ríki, hvort sem það er fjölþjóðleg samvinna eins og almannavarnasamvinna Evrópuríkja þar sem eru 37 ríki. Öll þessi samvinna getur verið af hinu góða. Hún kostar. En það er líka hægt að fá hluti úr henni. Það er mikilvægt, eins og hv. þingmaður ræddi um, að fólkið í landinu fái að ráða, sér í lagi þegar um stóra fjölþjóðlega samvinnu er að ræða sem getur haft mikil áhrif, þá er mikilvægt að fólk fái að ráða. Það er akkúrat í stefnu okkar Pírata þegar kemur að hlutum eins og Evrópusambandinu að þá viljum við fá vilja fólksins fram fyrst áður en haldið er áfram með viðræður. Við getum hugsað um Evrópusambandið í tengslum við þessa þingsályktunartillögu en líka bara almennt um það að fjölþjóðlegt samstarf hefur þróast, það hefur breyst. Frá því að afi minn heitinn sat hér á þingi og það slitnaði upp úr ríkisstjórn sem hann hafði myndað með Ólafi Thors þegar ákveðið var að semja fyrst við Bandaríkjamenn um veru hér og síðan um NATO, heimurinn hefur breyst síðan þá. Þessar fjölþjóðlegu stofnanir og samtök hafa líka þróast og breyst, sum hægar en önnur. Í tillögunni er jafnvel vísað aftur til Bretton Woods, og ég hef einmitt komið þangað nýlega og séð hvar þetta allt saman gerðist. Það eru til skemmtilegar sögur um það hvernig Bandaríkjamenn stjórnuðu nefndarriturunum öllum þannig að útkoma dagsins í öllum samningaviðræðum var alltaf Ameríkönum í hag. Það er margt í þessu sem kannski má þróast og hefur þróast og hvort sem þingsályktunartillagan nær að komast hér til atkvæðagreiðslu í þinginu eða ekki þá held ég að það sé mikilvægt að stjórnvöld og við í þinginu séum tilbúin að endurhugsa allt það samstarf sem við eigum í og hugsa um það hvernig það er að þróast, ekki bara vera áfram í einhverju samstarfi og setja pening í það af því að það hefur alltaf verið þannig. Kannski er kominn betri vettvangur til að gera hlutina en þeir sem við höfum notað undanfarna áratugi. Ef ég tek það inntak úr þessari þingsályktunartillögu að hlutirnir hafi breyst og við þurfum að hugsa þá upp á nýtt og við þurfum að vera tilbúin að skoða hlutina þá held ég að það sé af hinu góða.