eignarhald í laxeldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er kannski ekki alveg búin að rýna í allt en ég tek eftir því að þingflokkur Framsóknar er að fara í ákveðna þætti í fiskeldinu sem ég held að sé eðlilegt að við gerum hið fyrsta. Þetta er hluti af því sem við þurfum að skoða og ekki síst vil ég taka undir áhyggjurnar varðandi það að eignarhaldið sé ekki nægilega dreift. Ég tek heils hugar undir þann þátt. Um leið vil ég spyrja hv. þingmann, því mér sýnist allur þingflokkurinn meira og minna vera á málinu fyrir utan kannski ráðherra: Var einhver umræða um það að hækka veiðigjöld eða gjöldin sem greinin greiðir? Bara á þremur árum hefur útflutningsverðmæti laxeldis farið úr 18 milljörðum í ríflega 50 og það stefnir í 60 milljarða, held ég, á þessu ári þannig að það er gríðarlegur stígandi í fiskeldinu. En ég vil líka spyrja: Þarf ekki líka að taka upp gjaldtökuna sem fiskeldisfyrirtækin fengu frestað að mig minnir fram til ársins 2027? Það er ekki fyrr en þá sem er byrjað að greiða að einhverju marki. Telur þingmaðurinn ástæðu til að við endurskoðum samhliða þessu gjaldtöku á fiskeldisfyrirtækin?