eignarhald í laxeldi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að minnast á þetta atriði. Ég hef einmitt flutt aðra þingsályktunartillögu, sem er í atvinnuveganefnd, sem snýr að gjaldtöku í fiskeldi. Hún snýr kannski ekki að aukinni gjaldtöku heldur að því hvernig gjaldtakan skiptist. Mér finnst mjög mikilvægt að þetta sé haft í huga. Við erum á bernskustigi þessarar atvinnugreinar og sérstaklega á það við um sjókvíaeldið. Það eldi hefur gengið vel fram að þessu, en það eru miklir vaxtarverkir í þeim samfélögum og sveitarfélögum sem búa við slíkt eldi. Það kemur fram í nýlegri skýrslu frá KPMG að einungis 26%, frekar en 29%, fari til sveitarfélaganna, tekjurnar, og þá er það helst útsvarið. Þegar við erum að tala um þá gjaldtöku sem þegar er orðin skiptir mjög miklu máli að henni sé réttlátlega skipt því að það þarf vissulega að byggja upp sterka innviði á þeim stöðum sem þjónusta eldið. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi umræða sé tekin, en hvort við höfum tekið þá umræðu sérstaklega við gerð þessa frumvarps þá er það ekkert endilega svo, við vorum búin að taka hana í umræðum um hitt frumvarpið. En aukna gjaldtöku þarf að skoða. Auðvitað aukast tekjur sveitarfélaga og ríkisins í réttu hlutfalli við verðmætaaukningu en við þurfum jafnframt alltaf að skoða þessa hluti.