eignarhald í laxeldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil draga það fram að ég er eindreginn stuðningsmaður þess, og við í Viðreisn höfum rætt um það, að auðlindagjöld sem útgerðin, þá er ég að tala um sjávarútvegurinn, á að greiða — við viljum náttúrlega fara ákveðnar leiðir, en það er alveg ljóst að í gegnum þá leið munu auðlindagjöldin verða mun hærri en þau eru núna. Reyndar eru í raun engin auðlindagjöld borguð heldur þessi veiðigjöld og við teljum að það eigi að stórhækka þau. Samhliða því á að stofna innviðasjóð sem nálgast einmitt það sjónarmið sem hv. þingmaður talaði um. Við þurfum þá að beina þeim sjóði á þau svæði sem bera þungann af þessu. Það sama gildir um fiskeldið. Það er mjög eðlilegt að við horfum til þeirra svæða þar sem atvinnugreinin er að byggjast upp og að tekið verði tillit til sveitarfélaga sem hafa þurft að fórna ýmsu til að byggja upp atvinnugreinar. Ég er þeirrar skoðunar að nú þurfi að skoða, út af hröðum vexti greinarinnar, þann þátt sem snýr að gjaldtöku í sjávarútvegi. Ég vil sérstaklega skoða það mál sem hv. þingmaður hefur þegar lagt fram og er í atvinnuveganefnd, hvernig hægt er að tengja þetta saman. Fyrir utan það velti ég því fyrir mér hvort hægt væri að sameina umfjöllun í meðferð þessar tveggja mála, og þá er ég enn og aftur með dreift eignarhald í huga. Við þurfum að fara mjög vel yfir þann þátt til þess að við getum reynt að byggja upp fiskeldi á þann veg að það verði í meiri sátt við þjóðina en nú er og ekki síður sjávarútvegurinn, við eigum að læra af því. Ég held líka að það sé óhjákvæmilegt fyrir okkur að skoða enn betur umhverfiskröfurnar þegar við ræðum um fiskeldi. Það er margt að breytast og við eigum að vera snör í snúningum hér innan þingsins og gera ríkar umhverfislegar kröfur, meiri en við höfum gert fram til þessa.