152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum.

90. mál
[20:05]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um að Ísland gerist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um að banna kjarnorkuvopn. Ég mæli hér fyrir hönd flutningsmanns tillögunnar, hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur, en meðflutningsmenn eru hv. þingmenn Jódís Skúladóttir, Bjarni Jónsson, Orri Páll Jóhannsson og Kári Gautason.

Tillögutextinn sjálfur er mjög einfaldur, en hann hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni fyrir Íslands hönd að undirrita og fullgilda samning um bann við kjarnorkuvopnum sem samþykktur var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York 7. júlí 2017 og tók gildi 22. janúar 2021.“

Til að fara örlítið yfir aðdraganda samningsins, eins og rakið er í tillögunni, þá rekur hann í raun upphaf sitt allt til ársins 1968 en það var árið 2016 sem fjölmörg kjarnorkuvopnalaus ríki ákváðu að reyna nýja nálgun í baráttunni gegn þessum skelfilegu vopnum. Þar voru í broddi fylkingar samtökin ICAN og hlutu þau reyndar friðarverðlaun Nóbels árið 2017 fyrir baráttu sína.

Í rökstuðningi norsku nóbelsnefndarinnar kemur fram að samtökin hafi átt stærstan þátt í að leiða saman þjóðir heims og undirbúa gerð þessa mikilvæga sáttmála. Á fimmta hundrað friðarhópa og félagasamtaka um víða veröld standa saman að ICAN-samtökunum. Það er nefnilega þannig að á meðan kjarnorkuvopn eru til er hætta á að þeim verði beitt, hún er alltaf til staðar. Því miður er það svo að flest kjarnorkuveldin veita gríðarlega háar fjárhæðir í að þróa enn fullkomnari vopn en nú eru til staðar, og við sjáum því miður, í því stríði sem við nú upplifum, að rætt er af alvöru um að beita slíkum vopnum.

Kjarnorkuvopn hafa í för með sér óafturkræfan eyðileggingarmátt. Engin læknis- eða mannúðaraðstoð er möguleg strax í kjölfar kjarnorkuárásar. Til frambúðar hefur slík árás skelfilegar afleiðingar fyrir mannfólk, dýraríki, umhverfi og loftslag svo að ekki sé minnst á neikvæð áhrif á landbúnaðarframleiðslu ásamt skyndilegri hitalækkun og minnkun úrkomu á heimsvísu vegna reyks- og rykmyndunar. Bann við kjarnorkuvopnum er því eina tryggingin gegn notkun slíkra vopna og þeim afleiðingum sem notkun þeirra hefur í för með sér.

Afstaða Íslands til kjarnavopna er skýr og felur í sér að stefna skuli að kjarnavopnalausri veröld og að kjarnavopnum sé eytt með markvissum og gagnkvæmum hætti. Í þessu tilliti hefur Ísland í gegnum tíðina stutt margvíslegar ályktanir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem lúta að þessu markmiði. Þessi markmið birtast í þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem samþykkt var á Alþingi 13. apríl 2016 þar sem afvopnun er tilgreind í 1. gr. stefnunnar sem eitt leiðarljósið í að tryggja víðtæka öryggishagsmuni Íslands og það verði gert með virku alþjóðasamstarfi.

Í þjóðaröryggisstefnunni er einnig að finna sérstakt ákvæði sem kveður á um að Ísland og íslensk landhelgi sé friðlýst fyrir kjarnavopnum að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga í því augnamiði að stuðla að afvopnun og friði af Íslands hálfu, sbr. 10. gr. Þar er áréttuð áratugagömul stefna stjórnvalda um að hér á landi skuli ekki vera kjarnavopn. Eins og ég minntist á áðan hefur nýlegt stríð í Úkraínu fært okkur enn nær þeirri ógn sem fylgir kjarnorkuvopnaeign. Örlög mannkyns hvíla á herðum fárra leiðtoga sem ráða yfir næstum 13.000 kjarnavopnum, sem eitt og sér er gríðarlega ógnvekjandi. Við erum hér að tala um afl sem er nógu öflugt til að eyða jörðinni okkar margfalt. Notkun aðeins eins kjarnorkuvopns gæti drepið og sært hundruð þúsunda ef ekki milljónir manna og óbreyttra borgara og ytra umhverfi með geislun varir í margar kynslóðir.

Það eru engin fullnægjandi heilsuviðbrögð við slíkum hamförum eins og ég sagði áðan. Það er ánægjulegt að frá því þessi tillaga var fyrst samþykkt hafa bæst í hópinn þau ríki sem hafa fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnavopnum og eru þau nú orðin 59 en samningurinn festir í sessi afdráttarlaust bann við notkun þessara vopna. Samningurinn undirstrikar líka þá alvarlegu hættu sem stafar af áframhaldandi tilvist kjarnavopna og þeim óafturkræfu og gereyðandi afleiðingum sem slík vopn valda. Samningurinn skuldbindur ríki einnig til að koma þolendum kjarnavopna til aðstoðar ásamt því að koma á endurbótum vegna mengaðs umhverfis af völdum þeirra.

Virðulegur forseti. Svo lengi sem kjarnorkuvopn eru til er hættan á notkun þeirra viðvarandi. Heimurinn getur ekki haldið áfram að halda niðri í sér andanum og treysta á skynsemi þeirra heimsleiðtoga sem yfir slíkum vopnum ráða og sem hafa í raun vald til að tortíma okkur öllum, ógnin er alvöru. Við verðum að útrýma þessum gereyðingarvopnum. Þess vegna hvet ég Alþingi til að taka af skarið, sýna öðrum NATO-ríkjum mikilvægt fordæmi og stíga skref í átt að fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum. Við verðum að horfast í augu við það að þessi ógn er í alvörunni til staðar og nú horfum við upp á sturlaðan þjóðarleiðtoga sem svífst einskis.

Ég verð að segja það, fyrir hönd frummælanda þessa máls, Steinunnar Þóru Árnadóttur, sem er að leggja þetta mál fram í sjöttu sinn, að ég vona að þetta mál fari í gegnum þingið og hljóti brautargengi. Eins og hv. þingmaður sagði hér, þegar hún lagði málið fram í fyrra, með leyfi forseta: „Það þýðir ekkert að segja á tyllidögum að við séum friðelskandi og herlaus þjóð en leggja svo ekki okkar af mörkum þegar kemur að því að banna illræmdustu vopn sem fundin hafa verið upp.“

Með þessum orðum vil ég ljúka ræðu minni og legg til að málinu verði vísað til hv. utanríkismálanefndar og síðari umræðu.