152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:02]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Enn og aftur komum við hingað upp vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun virða ekki lög, þau lög sem þeim er sett að fylgja. Í fyrsta lagi þá túlkar dómsmálaráðherra — ég myndi ekki einu sinni kalla það að túlka heldur segir dómsmálaráðherra bara ósatt um innihald og efni laga um ríkisborgararétt og heldur því fram að hlutverk Alþingis sé einhvers konar aukahlutverk þegar kemur að veitingu ríkisborgararéttar, að það sé einhvern veginn óhefðbundið við hliðina á hinu venjubundna ferli hjá Útlendingastofnun. Þetta er bara rangt. Það sést mjög vel þegar lögin eru skoðuð að það er bara ósatt það sem hæstv. dómsmálaráðherra segir um lög um ríkisborgararétt og hlutverk Alþingis í því. Nú höfum við fengið það fram svart á hvítu frá lagaskrifstofu þingsins að það er líka ósatt varðandi þingsköp sem snúa að rétti nefnda til að kalla eftir gögnum, sem stofnun eða ráðherra ber raunar að svara innan viku frá beiðni, að sú fullyrðing hæstv. ráðherra að þetta eigi ekki við um þessa beiðni frá allsherjar- og menntamálanefnd er líka ósönn. Það höfum við núna svart á hvítu.