um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það gleður mig að lagaskrifstofa Alþingis hafi tekið skýra afstöðu með þinginu. Þá hlýtur að vakna sú spurning: Hvernig verður þessu fylgt eftir af virðulegum forseta? Hvernig munum við fara að því að fá öll lögboðin gögn í hús? Verður ekki örugglega tryggt að svo verði fyrir vikulok, allar umsagnir frá lögreglu, umsagnir frá Útlendingastofnun o.s.frv.? Ég vil líka vekja athygli á því að mér barst til eyrna í gær að Útlendingastofnun væri að synja afgreiðslu á umsókn um ríkisborgararétt vegna þess að frá því að Útlendingastofnun fékk umsóknina í hendur og þar til í dag, tæpt ár sem umsókn hefur legið á borðinu þar, þá hefði barn náð 18 ára aldri og félli því út úr ákveðinni kríteríu í lögum. (Forseti hringir.) Það er auðvitað algerlega óboðlegt (Forseti hringir.) að stofnun geti beitt sér með þessum hætti.