um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég sem nýr þingmaður á hinu háa Alþingi Íslendinga á erfitt með að ná utan um það vinnulag sem virðist vera hér til staðar. Ég verð sífellt meira hissa eftir því sem dögunum fjölgar á Alþingi að hlusta á þessa umræðu dag eftir dag og hún kemst ekkert áfram. Mig langar að líkja þessu við sveitarstjórnarstigið þar sem ég hef nú alið manninn að mestu leyti hingað til þar sem kjörnir fulltrúar ráða sér starfsmenn til að framfylgja þeim reglum sem settar eru. Það myndi heyrast eitthvað í okkur í sveitarstjórninni ef embættismennirnir gerðu bara eitthvað allt annað. Ég held, virðulegur forseti, að ég myndi bara kalla það valdarán. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)