152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:09]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem upp aðeins til að klára þessa umræðu sem ég var að reyna að byrja áðan en náði ekki vegna tímaskorts. Þetta snýst um það að á bak við umsókn er manneskja af holdi og blóði sem er að sækja um réttindi sem viðkomandi á rétt á að sækja um. Það hefur verið einhver misskilningur uppi hér, m.a. í máli hæstv. dómsmálaráðherra, að það sé einhvers konar forréttindameðferð að fara í gegnum þingið. Svo er auðvitað ekki heldur er ákveðinn hópur nauðbeygður að sækja um ríkisborgararétt í gegnum þingið vegna þess að viðkomandi uppfyllir ekki öll skilyrði fyrir því að geta fengið ríkisborgararétt samkvæmt stjórnvaldsákvörðun. Það að Útlendingastofnun hafi ákveðið að hrúga öllum umsóknum í eina hrúgu getur ekki verið vandamál Alþingis. Það eru ákveðnar umsóknir sem eiga að koma hingað, (Forseti hringir.) fólk sækir um til Alþingis en ekki samkvæmt stjórnvaldsákvörðun. Þá verða bara Útlendingastofnun og hæstv. dómsmálaráðherra að búa svo um hnútana að Útlendingastofnun fúnkeri.