152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:11]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp kannski einna helst til að bregðast við orðum hv. formanns allsherjar- og menntamálanefndar, hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur. Mér fannst einhvern veginn liggja í máli hv. þingmanns að hæstv. ráðherra hefði aldrei sagt eða gefið það út að hann vildi ekki afhenda þessi gögn. Ég vil bara árétta það að á opnum fundi með allsherjar- og menntamálanefnd spurði sú sem hér stendur hæstv. dómsmálaráðherra hvort hann teldi sér og Útlendingastofnun ekki skylt að framfylgja beiðni frá allsherjar- og menntamálanefnd samkvæmt 51. gr. þingskapalaga og hann bar því við að vegna þess að þetta væri ekki eftirlitshlutverk nefndarinnar þá ætti þessi grein þingskapalaga einfaldlega ekki við um þessa beiðni. Hann hélt því fram fullum fetum. Nú höfum við fengið það staðfest, sem við þóttumst svo sem vita fyrir, að svo er ekki. Síðan má að setja spurningarmerki við það að ráðherra í ríkisstjórn Íslands komi með einhverjar lagatúlkanir til nefnda um það hvað þær mega að biðja um og hvað ekki og hvenær þeirra heimildir til að kalla eftir gögnum (Forseti hringir.) eiga við og hvenær ekki. En það er svo sem ekki annars að vænta frá ráðherra sem er búinn að ákveða hvernig Alþingi á að haga veitingu á ríkisborgararétti.