152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

störf þingsins.

[15:44]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Ég er hingað komin til að tala um laxeldi sem er orðið ótrúlega rótgróið í okkar samfélagi og mikilvæg stoð atvinnulífsins. Ég er ekki komin hingað til að tala um áhrifin á náttúruna, ég er ekki hingað komin til að tala um erlent eignarhald. Það er margt sem við þurfum að skoða en það sem brennur á mér núna er lýðræði. Við tölum mikið um lýðræði. Við tölum um lýðræðisríki, lýðræðisleg vinnubrögð, lýðræðislegt samfélag. Laxeldið er komið til að vera og í minni heimasveit eða bara á Austurlandi er mikið og öflugt laxeldi þar sem ég hef sjálf, sem fyrrverandi formaður heimastjórnar á Djúpavogi, gert mitt til að greiða götu uppbyggingar þessarar atvinnugreinar. En það sem á eiga sér stað nú á Seyðisfirði, þar sem íbúalýðræði er fótum troðið í boði meiri hluta sveitarfélagsins, einkafélaga og erlendra fjárfesta, er svo stórkostlega galið að ég verð að vekja á því athygli hér, bæði fyrir þing og þjóð. Það fer gegn allri þeirri stefnu og vinnu sem í áratugi hefur verið á Seyðisfirði í uppbyggingu menntunar, menningar og ferðaþjónustu. Rúmlega helmingur íbúanna, hefur sagt sig vera algerlega andsnúinn þessari uppbyggingu. Hvernig getur það átt sér stað að svona gróflega sé brotið á íbúum og orð þeirra heyrist ekki? Það verður að stíga inn og standa með fólkinu sem hefur liðið nóg eftir skriðuföllin á Seyðisfirði.