152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.

[15:56]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir þessa umræðu um fjarheilbrigðisþjónustu. Þetta er auðvitað mjög víðtækt mál og hluti af því að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í heilbrigðiskerfinu á komandi árum um að veita góða þjónustu og ekki síst að vinna saman við þann mönnunarvanda sem blasir við okkur og breytta aldurssamsetningu og þjónusta íbúa þessa lands. Þetta eru allt í senn; byggðamál, aðgengismál, mönnunarmál, eins og ég kom inn á, skilvirknimál, öryggismál og gæðamál. Það er okkur afar mikilvægt að ýta undir alla nýsköpun og þróun á þessum vettvangi. Við höfum valið það svona út frá stefnumótuninni að horfa til fjarheilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn og er unnið að því að innleiða tækni og móta verklag og leiðbeiningar í kringum fjarheilbrigðisþjónustu í þeim tilgangi að tryggja öryggi og gæði gagnvart bæði sjúklingum og starfsmönnum og þeim gögnum sem unnið er með. En það eru enn veggir, vil ég segja, á milli opinberrar þjónustu og þeirrar nýsköpunar sem á sér stað víða. Það er eitthvað sem við þurfum að horfa til og vinna með stofnunum og nýsköpunarsamfélaginu. Í alþjóðlegum samanburði erum við vel tækjum búin og nettenging er víðast hvar góð. Það er búið að gera átak í þeim málum sem gerir það að verkum að við eigum að geta greitt fyrir aðgengi að fjarheilbrigðisþjónustu í gegnum snjalltæki og tölvur. En vissulega, eins og hv. þingmaður kom inn á í framsögu sinni, er getan til að tileinka sér tækni mismunandi á milli hópa og við þurfum að vinna í því. Það er því brýnt að vinna á þann hátt með leiðbeiningar og fræðslu og í einhverjum tilvikum sérúrræðum.

Ég ætla að bregðast við flestum af þeim spurningum sem hv. þingmaður lagði hér fram og þetta í upphafi sneri að aðgenginu.

Í öðru lagi spyr hv. þingmaður um stöðu stefnumótunar og innleiðingar fjarheilbrigðisþjónustu. Í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar er áhersla lögð á innleiðingu stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu og að nýta tækni til að auka gæði þjónustunnar og hagkvæmni. Þá vísa ég til heilbrigðisstefnu þar sem kemur fram að áformað er að bæta aðgengi að þjónustu með fjarheilbrigðisþjónustu m.a. þannig að við virkjum notendur heilbrigðisþjónustu á þann hátt að þeir hagnýti sér tækni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu og notkun ýmissa snjallforrita í því sambandi. Þessi stefna er auðvitað leiðarljós þegar unnið er að framgangi fjarheilbrigðisþjónustu. Forstjórar heilbrigðisstofnana eru umdæmisstjórar í sínu heilbrigðisumdæmi og auðvitað ásamt stjórnvöldum á þeirra ábyrgð að útfæra hvar og hvernig fjarheilbrigðisþjónustan nýtist best. Það hafa verið afmörkuð tilraunaverkefni í gangi og hv. þingmaður kom inn á þær greinar þar sem flest tilraunaverkefni eða þróunarverkefni hafa verið og henta mjög vel, hvar og hvernig er best að haga framkvæmd. Það er líka mikilvægt að draga fram að fjarheilbrigðisþjónusta getur nýst okkur mjög vel í því að stýra flæðinu, að sjúklingurinn sé á réttum stað á réttum tíma í kerfinu. Það er eitthvað sem hangir saman við þær áskoranir sem við þurfum að horfa til í heilbrigðisþjónustunni. Það hafa markviss skref verið stigin til að greiða fyrir þessari þróun hvað varðar lagaumgjörð og innleiðingu á nýrri tækni en þetta er að gerast mjög hratt. Covid tefur hraðað mjög mörgu. Ég get nefnt dæmi til að mynda í Covid-göngudeildarþjónustunni þar sem er í raun og veru alveg með ólíkindum hratt unnið og snjalltæknin nýtt og hugvitið í þeim efnum. En ég held áfram í seinni ræðu að bregðast við þessum spurningum.