152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.

[16:02]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Með fjarheilbrigðisþjónustu má segja að heilbrigðisþjónustan sé færð nær sjúklingnum. Fjarheilbrigðisþjónusta er ört vaxandi hluti almennrar heilbrigðisþjónustu hér á landi sem og í öðrum löndum þar sem upplýsinga- og fjarskiptatækni er notuð til að veita þjónustu án þess að sjúklingur og heilbrigðisstarfsmaður séu á sama stað. Tækifærin sem fólgin eru í fjarheilbrigðisþjónustu eru mörg og geta sparað heilbrigðiskerfinu og sjúklingum kostnað og tíma ásamt því að minnka álag á heilbrigðisstofnunum, þ.e. ef heilbrigðisþjónustunni er ekki bætt ofan á önnur verkefni sem heilbrigðisstarfsmenn eru að sinna og þau eru sannarlega næg fyrir.

Margvísleg tækifæri felast í að þróa fjarheilbrigðistækni á landsbyggðinni. Henni getur fylgt bætt og fjölbreytt þjónusta við landshlutana, aukið aðgengi og bættur viðbragðstími, en líkt og þegar um hefðbundna heilbrigðisþjónustu er að ræða verður að tryggja að almenningur eigi kost á öruggri fjarheilbrigðisþjónustu og að samskipti einstaklings og heilbrigðisstarfsmanna séu örugg. Fyllsta öryggis þarf að gæta við skráningu, meðferð og vistun gagna og viðkvæmra persónuupplýsinga. Læknar og aðrir fagmenn sem stunda fjarheilbrigðisþjónustu verða að tryggja umhverfi sitt meðan meðferð fer fram þannig að friðhelgi sjúklings sé tryggð og enginn óviðkomandi geti fylgst með eða truflað meðferð á meðan hún stendur yfir.

Að ýmsu er að gæta líkt og við alla heilbrigðisþjónustu en nýsköpun og tækniþróun á sviði fjarheilbrigðisþjónustu mun sannarlega verða til mikilla bóta fyrir fólk sem býr út um landið en þarfnast þjónustu frá Landspítalanum, svo dæmi sé tekið, og jafnvel gefið möguleika á þjónustu og meðferð sérfræðinga sem búa erlendis.