staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Virðulegur forseti. Þann 11. júní 2018 var samþykkt á Alþingi þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024. Þar er sérkafli um fjarheilbrigðisþjónustu þar sem leitast verði við að jafna aðgengi almennings að almennri sem og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu og áttu um 140 milljónir að fara til þess verkefnis úr byggðaáætlun.
Framsæknir læknar og vísindamenn á Landspítala hafa sótt um styrk til heilbrigðisráðuneytisins til að þróa fjarheilbrigðisverkefni fyrir augnskoðanir sykursjúkra. Verkefnið er samstarfsverkefni Landspítala og þriggja heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og samræmist markmiðum og heilbrigðisstefnu yfirvalda um fjarheilbrigðisþjónustu, samanber byggðaáætlun. Styrkbeiðni þessari hefur verið hafnað af heilbrigðisráðuneytinu og þykir mér það undrum sæta. Verkefnið er samstarf Þekkingarseturs Vestmannaeyja, Háskóla Reykjavíkur og fjögurra heilbrigðisstofnana, Landspítalans, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum, Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Tilgangur þess er að setja upp skimun fyrir íbúa í Vestmannaeyjum, á Suðurnesjum og á Norðurlandi eystra. Um er að ræða fyrsta skref í átt að uppbyggingu samræmdrar þjónustu við fólk með sykursýki óháð búsetu þess. Þessi þjónusta er nýjung hér á landi og má gera ráð fyrir talsverðum sparnaði fyrir heilbrigðiskerfið, m.a. vegna lækkunar á ferðakostnaði sjúklinga. Auk þess mun sjálfvirknivæðing lækka kostnað vegna aflestrar myndgreiningar sem hefur að öllu jöfnu verið framkvæmd af sérfræðilæknum.
Ég vil hvetja ráðherra til að skoða þetta verkefni með jákvæðum huga enda yrði þetta mikið framfaraskref í fjarlækningum á Íslandi.